Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) (um þingsköp) :
    Herra forseti. Hv. 4. þm. Vesturl. tók þannig til orða að það væri samkomulag um það í ríkisstjórninni að láta þingið standa hér alla næstu viku. Ég þakka honum fyrir að upplýsa mig um þetta, en ég er hluti af ríkisstjórninni og hafði aldrei heyrt þetta fyrr.