Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) (um þingsköp) :
    Herra forseti. Að gefnu tilefni eftir að mér hefur verið skýrt frá þeirri umræðu sem hér fór fram áðan vil ég taka fram að það er enn þá stefnt að því að ljúka þingi á laugardaginn. Hins vegar er rétt að það er ekki samkomulag í umhverfismálum og kann að vera að það stefni því í einhverja hættu, en enn þá er stefnt að því að ljúka þingi á laugardaginn. Það er úr lausu lofti gripið að ákvörðun hafi verið tekin um það að halda áfram í næstu viku.