Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) (um þingsköp) :
    Herra forseti. Það er dálítið óvenjulegt að biðja mann að staðfesta það að hann hafi sagt rétt frá áðan. Ég get ekki annað en endurtekið það sem ég sagði áðan. Það er stefnt að þinglausnum á laugardaginn og einlæg von mín að það takist. Að vísu er ekki samkomulag um umhverfismálin. Þetta sagði ég áðan. En það á að taka umhverfismálin fyrir í Nd. núna á eftir og kannski leysast þau þá. Þetta er nákvæmlega það sem ég sagði og ég endurtek það.