Eyjólfur Konráð Jónsson (um þingsköp) :
Herra forseti. Óeðlilegt eða óvenjulegt að biðja menn að staðfesta það sem þeir hafi áður sagt. Ég veit ekki betur en forsrh. sjálfur hafi viljað fá hér hlé til að ráðgast um málið og fá einhverjar niðurstöður. ( Forsrh.: Forseti ákvað þetta.) Nú, en þið fóruð allir á fund. Ef það er misskilningur þá er það út af fyrir sig í lagi. Forsrh. hefur nú staðfest að svona muni þetta verða og störfum við að sjálfsögðu eftir því framvegis.
En hitt stendur eftir að annaðhvort hefur hæstv. ráðherra umhverfismála vísvitandi farið með ósannindi eða hann ... ( KP: Væri ekki hægt að fá hann í salinn?) Ja, ég er ekkert að biðja um það sérstaklega. Hann ku hafa verið á fjöllum. Hann er kominn af fjöllum og er hér og ef hann vill tala þá er honum það auðvitað frjálst. En það er ljóst að forsrh. hefur ákveðið það og sagt frá því að þingi ljúki á laugardag. Enginn efast um að Skúli Alexandersson segi satt og rétt frá að umhverfisráðherra hafi sagt honum að hér yrði þing haldið í næstu viku. Það efast enginn um það, það vita það allir hér í deildinni að þannig var það því að ráðherra jánkaði því sjálfur. Það liggur þá fyrir að forsrh. er með í ráðuneyti sínu einn ráðherra a.m.k. sem segir vísvitandi ósatt um þinghaldið.