Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Þorv. Garðar Kristjánsson:
    Herra forseti. Með því að frv. felur í sér framlengingu á núverandi kvótakerfi með aflatakmarki á hvert sérstakt skip, með því að sú fiskveiðistefna hefur ekki þjónað þeim tilgangi að vernda fiskistofnana og ná hámarksafrakstri fiskveiða, er ég samþykkur því að vísa frv. til föðurhúsanna og segi já.