Stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Frsm. 1. minni hl. sjútvn. (Skúli Alexandersson):
    Herra forseti. Eins og ég gat um við 2. umr. flyt ég hér við 3. umr. málsins brtt. á þskj. 1186. Í fyrsta lagi er lagt til að 9. gr. sem nú er í frv. falli brott, um það að sé fyrirsjáanlegt að verulegar breytingar verði á aflatekjum milli veiðitímabila af veiðum á öðrum tegundum sem sæta ákvæðum um leyfilegan heildarafla en botnfiski og úthafsrækju sé ráðherra heimilt að skerða og auka tímabundið botnfiskmark sérveiðiskipa. Ég legg til að þessi grein verði felld burt og í staðinn komi tillaga úr fiskveiðitillögum Alþb., um byggðakvótann. 9. gr. orðist þá svo:
    ,,Sé skip selt úr byggðarlagi fylgir því þriðjungur aflahlutdeildar þess en tveir þriðju hlutar aflahlutdeildar verða eftir í því sveitarfélagi sem skipið var selt frá. Skal sveitarstjórn úthluta útgerðum annarra skipa í byggðarlaginu árlega því aflamarki sem eftir varð í tvö fiskveiðiár eða veiðitímabil eftir söluna. Eftir þann tíma skal sveitarstjórn úthluta aflahlutdeild hins selda skips varanlega öðru skipi eða öðrum skipum í byggðarlaginu. Ráðherra skal með reglugerð ákveða hvaða reglur skuli gilda um úthlutun sveitarstjórnar á aflahlutdeild eða aflamarki samkvæmt þessari grein.``
    Þetta er næstum samhljóða þeim samþykktum sem Alþb. gerði um þessa hluti.
    Í 11. gr. komi þrír nýir málsliðir er orðist svo:
    ,,Óheimilt er þó að framselja aflahlutdeild milli skipa sem ekki tilheyra sama flokki. Þó er heimilt að framselja aflahlutdeild frá stærra skipi til minna skips. Í þessu sambandi skal skipum, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, skipt upp í eftirtalda fjóra flokka: bátar undir 30 brl., bátar 30 brl. og stærri, togarar aðrir en þeir sem frysta afla um borð og frystitogarar.``
    Þessi grein kveður á um það að ekki sé hægt að flytja varanlegt aflamark frá minni skipum til stærri. Þetta mundi hafa í för með sér að það væri minni hætta á því að verulegar tilfærslur væru á varanlegum kvótatilflutningi og þetta mundi líka hafa í för með sér að orðið gætu tilfærslur innan hvers stærðarflokks og þær mundu sjálfsagt verða og þó nokkur tilhneiging til þess og flotinn mundi minnka en ekki væri hætta á að nein veruleg skekkja yrði á því útgerðarmunstri, ef má orða það svo, sem við búum við eða höfum búið við. Það mundi ekki gerast að togaraflotinn kaupi upp meginhluta smábátanna, frystitogaraflotinn stækki og bátum fækki.
    Þá er brtt. við 16. gr. í sambandi við vigtun, um að í stað 1. mgr. komi tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
    ,,Allur afli, þar á meðal sá afli sem fluttur er óunninn úr landi, skal veginn á löndunarstað. Hafnaryfirvöld á hverjum löndunarstað skulu hafa umsjón með vigtun afla og söfnun upplýsinga um landaðan afla.
    Sigli skip með eigin afla til sölu erlendis er heimilt að víkja frá ákvæði 1. mgr. um vigtun innan lands enda sé fullnægt kröfum ráðuneytisins um vigtun við

löndun eða sölu afla erlendis.``
    Allar þessar tillögur, sem ég flyt hér, eru teknar beint úr samþykktum Alþb. sem ég skýrði frá í ræðu minni við 2. umr. og þær eru einnig á þann hátt að þær tengjast beint þeim tillögum sem þingflokkur Alþb. sendi til ríkisstjórnar og einnig þeirri sérbókun sem ég afhenti við afgreiðslu mála í ráðgjafarnefndinni.
    Ég vænti þess að hv. þingmenn veiti mér stuðning til að fá þessar tillögur samþykktar og með þeim samþykktum tel ég að frv. sem við höfum verið að fjalla um og búið er að samþykkja við 2. umr. mundi breytast mjög til hins betri vegar og að þeim samþykktum mundi ég treysta mér til að samþykkja það.
    Þá vil ég aðeins nefna brtt. við 17. og 18. gr. frv. sem er fram borin af þeim Stefáni Guðmundssyni og Jóhanni Einvarðssyni. Þær breytingar báðar tengjast því áliti sem við fengum frá Lagastofnun Háskóla Íslands. Vel má vera að rök séu fyrir því að flytja þessar brtt. en ég tel að fyrst á annað borð var farið að flytja brtt. út frá þessari álitsgerð, þá séu þar margir fleiri þættir sem eðlilegt hefði verið að taka og kannski enn þá eðlilegra en þessar breytingar. Ég tel líka að það orki nokkuð tvímælis að hvað snertir þessar brtt., reyndar er sú fyrri fyrst og fremst orðalagsbreyting sem breytir ekki eðli laganna í einu eða neinu en brtt. við 18. gr. --- ég les a.m.k. það út úr áliti Lagastofnunar að það orki tvímælis hvort hér sé verið að breyta á þann hátt sem þar er lagt til.