Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Ólafur G. Einarsson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þetta tilboð sem hann gerir okkur um að fallast á brtt. okkar sem við lögðum fram við 2. umr. Ég met það svo að hæstv. forsrh. vilji enn reyna að ná samkomulagi um þetta mál og það er satt að segja meira en hægt er að segja um suma aðra sem telja sig þetta mál varða. Ég met þennan samkomulagsvilja hæstv. forsrh.
    Í umræðu um málið hér í fyrrakvöld boðaði ég tvær brtt. til viðbótar, þ.e. að 16. og 17. gr. frv. féllu brott. Ég veit ekki hvort tilboð hæstv. forsrh. nær til þessa, en vænti þess að við höfum tækifæri þá til þess að ræða það mál. Ég er ekki að biðja um svar við því núna á þessari stundu. Hins vegar þætti mér nú satt að segja æskilegt að heyra einu sinni viðbrögð hæstv. umhvrh. héðan úr ræðustól Alþingis en ekki bara að við heyrum í honum viðbrögðin í fjölmiðlum. Ef hann er hér viðstaddur þá þætti mér því gott að vita hver hans viðbrögð við þessu tilboði hæstv. forsrh. eru. Það er að vísu ekkert aðalatriði heldur hitt að við erum reiðubúnir, sem stöndum að þessum brtt., að ræða þessi mál við hæstv. forsrh. og ég ítreka það að ég met samkomulagsvilja hans.