Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Kristín Einarsdóttir (um þingsköp) :
    Herra forseti. Mig langaði í tengslum við þá umræðu sem var hér í upphafi þessarar þingskapaumræðu varðandi umhverfisráðuneyti að taka fram að kvennalistakonur hafa lagt fram brtt. við frv. Við höfum ekki enn þá fengið þær til afgreiðslu í þinginu, þær hafa ekki verið bornar upp. En við erum að sjálfsögðu tilbúnar til þess að líta á einhvern grunn til samkomulags varðandi þessi mál og teljum að okkar tillögur eigi að sjálfsögðu að koma þar með en ekki eingöngu þær tillögur sem sjálfstæðismenn hafa lagt fram í þessu máli.