Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Sighvatur Björgvinsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég lýsi undrun minni á ummælum hv. 1. þm. Norðurl. v. hér áðan. Það hefur komið fram frá hv. þm. Alexander Stefánssyni, verið lýst tvisvar yfir hér úr ræðustól, að hv. 1. þm. Norðurl. v., sem jafnframt er formaður þingflokks Framsfl., hafi ítrekað komið í veg fyrir að það frv. sem hér er um að ræða fengist rætt á þingflokksfundi í Framsfl. vegna þess að hann persónulega er andvígur því.
    Það hefur líka komið fram að við flm. þessa máls, sem eru allir nefndarmenn í fjvn., féllumst á að fresta umræðu um það aftur og aftur í Nd. Alþingis að beiðni ráðherra. Málið komst því ekki til umræðu fyrr en mörgum mánuðum eftir að það var lagt fram. Þá kom í ljós að hv. 1. þm. Norðurl. v. lýsti sig andvígan málinu, en í ljós kom í umræðunni að hann hafði ekki einu sinni lesið frv. Það er búið að mælast til þess við hann hvað eftir annað að hann afgreiði málið úr nefnd. Ég get upplýst að það var tekið fyrir á fundi fjh.- og viðskn., eins og hv. þm. sagði, sl. mánudag og var þar 7--10 sekúndur til umræðu, var tekið jafnharðan út af dagskránni aftur.
    Ef menn ætla að ljúka Alþingi með skikkanlegum hætti, eins og allir alþingismenn vilja nú og stefnt mun vera að, þá getur þessi hv. þm. ekki komist upp með það að sitja svona á málum sem allir fulltrúar Alþingis í tiltekinni þingnefnd hafa flutt. Verður það þá að hafa sín eftirköst ef maðurinn gegnir ekki skyldu sinni, sem formaður nefndarinnar, hvað svo sem varðar hans persónulegu afstöðu til málsins. Það kann að vera orðið nokkuð seint að hv. þm. lesi þetta frv. en hann verður þá að afgreiða málið frá nefndinni ólesið af sjálfum sér. Ég er viss um að aðrir hv. nefndarmenn hafa gefið sér tíma til þess að lesa málið.
    Virðulegi forseti. Ég fer þess mjög eindregið á leit að hæstv. forseti þessarar deildar sjái til þess að hv. 1. þm. Norðurl. v. geri skyldu sína.