Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Hæstv. iðnrh. er að tala við fréttamann og ég tjáði honum að ég mundi doka við þangað til því samtali væri lokið. En ég vil líka láta hæstv. forseta vita það að ég óska eftir því að Friðrik Sophusson sé hér meðan ég flyt ræðu mína því ég mun gera athugasemdir bæði við ræðu hans og eins útreikninga sem hann hefur gert. Hann er þarna að tefla svo að hann hlustar þá kannski með öðru eyranu. Ég hef þá alla vega afsökun fyrir því að tala hreint út úr pokanum af því að hann er þó viðstaddur.
En ég mun taka mér málhvíld þar til hæstv. iðnrh. kemur. Ég hefði líka viljað sjá hæstv. forsrh. því að hér er mál á ferðinni sem er sjálfsagt mikilsverðasta málið sem hefur verið fjallað um þann tíma sem ég hef verið á Alþingi. ( Forseti: Forseti hefur ekkert við það að athuga að hv. ræðumaður doki við eftir hæstv. iðnrh. Hann tjáði forseta að hann þyrfti að svara símkalli og mundi koma að vörmu spori aftur. Eins mun forseti koma þeirri ósk á framfæri við hæstv. forsrh. að hans nærveru sé óskað hér við umræðuna.) Ég má ganga úr ræðustól, er það ekki? ( Forseti: Forseti hefur ekki við það að athuga. --- Þar sem það dregst að hæstv. iðnrh. komi í þingsal, þá sér forseti ekki ástæðu til að halda hv. ræðumanni í ræðustól og frestar fundinum smástund.) --- [Fundarhlé.]
Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða um eitt stærsta mál sem ég hef fengið tækifæri í minni þingsögu til að taka þátt í umræðu um. Það er líka annað mál hér fyrir þinginu sem mum e.t.v. líka skipta sköpum um hvernig þróun mála verður á næstu árum. Það sem einkennir þetta frv. er að ég man ekki til þess, það eru kannski einhverjir minnugri en ég, að aðrar eins blekkingar hafi verið hafðar í frammi við nokkurt mál og er þá langt jafnað. Mun ég koma að því síðar. Ég mun einnig taka til athugunar ræðu hv. 1. þm. Reykv., og vona að hann verði hér í sal, enn fremur fullyrðingar hans um hagnað Landsvirkjunar og þjóðarinnar á raforkusölu til Ísals.
Þrátt fyrir allan fyrirganginn, fjölmiðlaáróðurinn, sendinefndir til ríkisstjórnar og þingmanna að ógleymdum hinum sjálfskipuðu agentum fyrr og síðar fyrir byggingu álsmiðju við Eyjafjörð hef ég ekki tilfinningu fyrir því að slík óhamingja geti átt eftir að henda það gjöfula og fagra hérað að þar verði byggð verksmiðja sem dreifi eimyrju yfir byggðirnar. Ég stend í þeirri trú, þrátt fyrir fullyrðingar um að komin sé þjóðarsátt um að stefna að því að álver verði byggt þar sem erlendir álfurstar óska og þrátt fyrir neyðaróp einstaklinga úr eyfirskum byggðum, að ef þar verði ekki byggt hið umtalaða álver sjái þeir fram á eyðingu byggðarinnar. Já, ég stend enn þá í þeirri trú, þó nú nýverið væri haft eftir varaformanni Einingar á Akureyri að hann sjái fram á dauða og djöful ef Eyfirðingar fái ekki álver. Ég hef það eftir eins og ég heyrði það. Mér finnst slíkar upphrópanir flokkast undir hrein öfugmæli sé málið athugað niður í kjölinn. Merkisberar álversins eru ekki vandir að meðulum í þessari baráttu sinni. Þeir hafa t.d. fullyrt í mín eyru
að það sé alger einhugur um málið norðan fjalla. Mér heyrist þó að annað sé að koma fram og vissi ég það fyrir. Var ég búinn að segja hæstv. iðnrh. það í haust hvernig
menn litu á þetta mál norður þar.
Ástæðan fyrir því að lítið hefur heyrst í þeim sem ekki telja álver bjargráð fyrir Eyfirðinga er að allar áætlanir fram að þessu hafa verið við það miðaðar að slík bygging yrði reist í námunda við Straumsvík. Þeir hafa litið svo á að yfirlýsingar sumra stjórnmálamanna um hið gagnstæða væru helber sýndarmennska, enda málflutningurinn þannig fram settur að auðvelt væri að kenna hinum erlendu álfurstum um staðsetninguna þar sem þeir hafa alltaf haldið því hátt á lofti að þeir réðu staðarvalinu. Það sýnist ekki hátt risið á ráðamönnum þjóðarinnar þessa stundina, sem betur fer, sé litið til umræðunnar um byggingu álvers.
Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að væna neinn um það að fólk sé vitandi vits að berjast fyrir uppbyggingu atvinnurekstrar í Eyjafirði sem yfirgnæfandi líkur eru á að muni valda umtalsverðri mengun og alvarlegu tjóni, nái það fram að ganga. Æðimargir hafa haft samband við mig og ýmsa samherja mína í þeim tilgangi að reyna að hafa áhrif á okkur í þá átt að við förum ekki að leggja stein í götu álmanna í eyfirskum byggðum. Þegar farið er að ræða um þessi mál við þetta fólk og benda á ýmsar staðreyndir um þennan atvinnurekstur hefur það vakið athygli mína að fyrstu viðbrögð flestra eru að þeir fara að telja upp fólk sem hefur lýst yfir fylgi sínu við að byggt verði álver við Eyjafjörð, þar á meðal ráðherra, þingmenn, verkalýðsforingja, meira að segja eyfirska bændahöfðingja, að ógleymdum bankastjórum. Að upptalningunni lokinni er sagt: Heldur þú að fólk viti ekki hvað okkur er fyrir bestu? Þegar spurt er: Hvað veist þú um mengun frá álverum? er yfirleitt ekkert svar. Í stað þess er bent á málatilbúning fjölmiðlanna, endurtekin upptalning á þessu átrúnaðarfólki og bætt við: Hér er atvinnuleysi. Okkur stendur ekki annað til boða, annars flytja allir suður. Eftir því sem málið er meira rætt minnkar
trúin á átrúnaðarfólkið og þar með álið. Þessi reynsla mín hefur orðið til þess að ég fór að athuga flestar hliðar þessa máls.
Reynsla okkar Íslendinga af verðbólgu og háum vöxtum ætti ekki að leiða til þess að við gerðum neitt vitandi vits til þess að verðbólguskriða færi af stað á nýjan leik. Bygging 200 þús. tonna álbræðslu ásamt nauðsynlegum virkjunarframkvæmdum næstu árin, sem kallar á 3--4 þús. starfsmenn yfir sumarmánuðina sum árin, hlýtur að hafa veruleg verðbólguáhrif. Ráðamönnum mun vera þetta ljóst. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri hefur þegar bent ríkisstjórninni á hvernig best sé að koma í veg fyrir þensluáhrif frá slíkum framkvæmdum. Hans ráð eru að hið opinbera stöðvi að sem mestu leyti framkvæmdir og reyni að hafa áhrif á sveitarfélögin í landinu að gera slíkt hið sama meðan á álbræðslu- og virkjunarframkvæmdum stendur.
Hv. þm. heyrðu boðskap hv. 1. þm. Reykv. hér
áðan. Hann var að átelja að verið væri að ræða um jarðgöng á sama tíma sem stefnan mundi vera að draga úr framkvæmdum til að vinna gegn þensluáhrifum frá hinu fyrirhugaða álveri. Og Þjóðhagsstofnun hefur einnig gert sig seka um þetta --- ég segi seka. Ef eftir þessari stefnu yrði farið, væri þá ekki réttnefni á þessari nýju stefnu að kalla hana byggðaeyðingarstefnu? Í því sambandi verða allir að hafa það í huga að Atlantal-hópurinn svokallaði hefur sett fram þá ósk að ef farið verður í byggingu álbræðslu hér á landi vilji þeir tryggja sér rétt til þess að tvöfalda framleiðsluna þegar henta þykir. Og nú hefur það komið fram að það sé innan tíu ára, þannig að ekki er að sjá annað en það verði samfelld uppbygging. Hvernig yrðu þá byggðirnar staddar sem fá ekki þetta keppikefli, þetta álver, hvernig verða þær staddar eftir þessa uppbyggingu ef á að stöðva framkvæmdir að öðru leyti? Ef slík bygging risi t.d. við Reyðarfjörð, sem ég hef nú aldrei haft trú á, eða við Eyjafjörð, hvað þá heldur á suðvesturhorninu yrði þenslan gífurleg í kringum byggingarsvæðið en kyrrstaða annars staðar. Er þetta byggðastefnan, hæstv. forsrh., sem líklega enginn stjórnmálaflokkur vill eða þorir að gangast við þótt allt bendi til þess að ríkisstjórnin sé að leggja grunn að henni með gerð samninga um byggingu álbræðslu á Íslandi?
Þessi stefna mundi einnig leiða af sér að hlutur kvenna yrði gersamlega fyrir borð borinn ef ekki kæmi önnur umtalsverð atvinnuuppbygging til. Hjá Ísal t.d. er atvinnuþátttaka kvenna 9,6%, eða ein kona á móti hverjum tíu körlum. Hæstv. iðnrh. hélt því fram hér í gærkvöldi að þetta yrði aðlaðandi vinnustaður, álbræðsla, fyrir konur jafnvel. Ég hef komið inn í nokkrar álbræðslur, þessa einu sem hér er og þrjár erlendis og ég veit ekki hvort hæstv. iðnrh. óskaði eftir því að hans kona fengi sér vinnu í slíku umhverfi eða börn. Ég vil það ekki og ég veit að það eru fleiri.
Ástæðan fyrir því að tekist hefur að setja allt af stað er sú að Morgunblaðið segir frá því á sunnudaginn eða í gær að hæstv. iðnrh. hafi skrifað 13 bæjarfélögum og 29 hreppum og spurt: Hvað vilt þú gefa fyrir álver? eða eitthvað í þá áttina. Hvað vilt þú slaka á? Sem sagt, álver er komið á uppboð. Það er sorglegt að ríkisstjórnir og þó sérstaklega iðnaðarráðherrar hver fram af öðrum hafa lagt þunga áherslu á byggingu álvera á liðnum árum og lagt fram mikla fjármuni til þess að leita eftir auðhringum til að reisa hér slíka verksmiðju. Ekki hefur heyrst að leitað hafi verið eftir öðrum möguleikum sem betur henta við okkar aðstæður. Hafi það verið gert þá hefur það a.m.k. farið leynt.
Það er einnig sagt að hinn ameríski auðhringur hafi látið þau orð falla að þeir væru ekki vanir að semja um byggingu álvers nema orkan væri til. Ég skil það mætavel. Ég skil það og veit að Blönduslysið hrellir náttúrlega ýmsa. Engin not eru fyrir þá raforku fyrr en einhver kaupandi finnst. Ég er ekki farinn að sjá annað en það lendi á þjóðinni að standa undir þeim vöxtum því aldrei verði hægt að gera það með öðrum
hætti.
Það var alveg rétt að það var slys við Kröflu, en þetta er annað slys. Það er dálítið merkilegt að þegar er verið að setja upp þetta frv. þá er Blanda ekki inni í greinargerð. Henni er bara sleppt út. Er búið að afskrifa Blöndu? Á ríkið að taka hana á sínar herðar? Ef við tökum mark á þeim tölum sem eru í greinargerð er ekki hægt að sjá annað.
Áður en lengra er haldið þykir mér rétt að skýra afstöðu mína og minna félaga sem skýrir alveg hvers vegna ég hef lagt nokkra vinnu í það að athuga þetta mál. Og ég átel iðnn. Ed. fyrir að hafa ekki farið ofan í saumana á þessu máli eins og allt er í pottinn búið. Ég ætla, virðulegi forseti, að lesa nokkra kafla upp úr okkar stefnu í sambandi við orkufrekan iðnað:
,,1. Samtökin eru ekki andvíg orkufrekum iðnaði en setja þau skilyrði að hann standi undir raunverulegum orkukostnaði og spilli ekki náttúru landsins.
2. Samtök jafnréttis og félagshyggju telja að Íslendingar eigi sjálfir að virkja fallvötn sín, en einungis að byggja nýjar stórvirkjanir ef tryggt er að hagnaður verði af orkusölunni. Í því sambandi verður að taka með í útreikningana eðlilega fyrningu, viðhald og fjármagnskostnað af orkumannvirkjum. Það er enn fremur óeðlilegt að miða alla útreikninga
orkufreks iðnaðar við hagkvæmustu virkjunarkosti. Nær væri að taka meðaltalskostnað þeirra virkjunarkosta sem við vitum um og eru á döfinni.
3. Samtökin eru andvíg byggingu álvers við Eyjafjörð vegna mengunarhættu og telja að Eyjafjörður eigi að vera matarframleiðsluhérað sem framleiði góða, heilnæma og ómengaða matvöru. Það er raunar alveg óviðunandi að Eyfirðingum sé aldrei boðinn annar valkostur í orkufrekum iðnaði en álver. Svo virðist sem iðnrn. hafi ekkert gert í þessum málum á síðustu árum annað en að tvöfalda eða þrefalda þá stærð álvers sem Eyfirðingum var boðið fyrir fimm árum.
4. Álver af þeirri stærð sem iðnrh. hefur kynnt virðist hvergi henta nema þar sem mannfjöldi er mikill. Vegna þess að Samtök jafnréttis og félagshyggju vilja viðhalda dreifðri búsetu um landið teljum við að önnur minni orkufrek fyrirtæki en álver henti betur til atvinnuuppbyggingar út um land og því beri að kanna slíka möguleika.
5. Samtökin telja að ef ráðist verður í stækkun álversins við Straumsvík sé ekki ráðlegt að stækka það umfram það sem Blönduvirkjun gefur tilefni til.
Fjárfesting í orkumannvirkjum skal miðast við þekktar stærðir í orkuþörf á næstu árum. Stærð og staðsetning nýrra framleiðslufyrirtækja verður að ákvarðast af hagkvæmni- og byggðasjónarmiðum. Fullt tillit verði tekið til þeirrar búsetu sem er nú í landinu þegar tekin er ákvörðun um uppbyggingu atvinnufyrirtækja og staðsetningu þeirra. Atvinnufyrirtækin til fólksins en ekki fólkið til fyrirtækjanna þar sem því verður fyrir komið.``
Ég kemst ekki hjá því að lesa hér tvær greinar upp úr lögum um Landsvirkjun.
,,7. gr. Til byggingar nýrra raforkuvera og
meginstofnlína þarf Landsvirkjun leyfi ráðherra þess sem fer með orkumál. Áður en byrjað er á nýjum mannvirkjum, hvort heldur eru raforkuver eða meginstofnlínur, skal Landsvirkjun senda ráðherra þeim, sem fer með orkumál, uppdrætti af hinum fyrirhuguðu mannvirkjum ásamt lýsingu á þeim. Getur ráðherra krafist þeirra breytinga á fyrirhugaðri tilhögun mannvirkja sem nauðsynlegar kunna að þykja vegna almenningshagsmuna.``
Og svo segir hér í síðari hluta 13. gr.: ,,Landsvirkjun gerir orkusölusamninga við almenningsrafveitur og iðjuver innan þeirra marka sem segir í 2. gr. Til orkusölusamninga til langs tíma við iðjuver sem nota meira en 100 millj. kwst. á ári þarf Landsvirkjun leyfi ráðherra þess sem fer með orkumál. Slíkir samningar mega ekki að dómi ráðherra valda hærra raforkuverði til almenningsrafveitna en ella hefði orðið.``
Það er ekki leyfilegt eftir þessari lagagrein að gera samning sem mundi verða til þess að verð til almenningsnota síðar meir yrði af þeim ástæðum hærra. Og þá vil ég spyrja hæstv. iðnrh.: Telur hann ekki eðlilegt að tekið verði meðaltalið af þeim 15 virkjunarmöguleikum sem ég hef nú komist yfir að athuga og orkuverðið miðað við þá tölu? Ég sé ekki og skil ekki að leyfilegt sé að gera öðruvísi samning. En það sem er kannski athyglisverðast af öllu í þessu máli er hvernig þetta er sett upp. Í greinargerðinni með frv. er bara sett fram 27 milljarða fjárfesting, þ.e. Blönduvirkjun er ekki þar með þó að hún þurfi að vera með ef miðað er við 3000 gwst. til þess að geta skaffað þá orku sem þetta umtalaða álver þarf. En ef maður athugar hvernig þetta er, að Búrfell ásamt Kvíslaveitum og stærðum Þórisvatns kostar 6 milljarða 266 millj., Fljótsdalsvirkjun 18 milljarða 673 millj., stækkun Kröflu 1 milljarð 411 millj., Nesjavellir I 906 millj., Blanda 12 milljarða 654 millj., miðað við það sem búið er og þá áætlun sem hefur verið gerð, sé ég ekki að það þurfi að leggja neinar línur í þessu. Ég hef ekki séð það. Það getur vel verið að mér hafi skotist yfir, enda fæ ég ef ég tek háspennulínurnar, eins og áætlað er að þær kosti eftir þessum plöggum sem ég hef, 6 milljarða 775 millj., eða þessi pakki samtals 46 milljarðar 685 millj. Og þarna eru ekki spennistöðvarnar með. Þarf engar spennistöðvar? Hafa þær gleymst eða er þeim gleymt viljandi hér?
Ég hef verið að gaufa við það á kvöldin og 1. maí að reikna út hvað hver virkjunarkostur sem ég hef komist yfir að eru áætlanir til um kosti, hver kwst. Það er ákaflega misjafnt. Ég ætla ekki að eyða tímanum í að lesa það. En það er allt frá 5 millj. 33 þús., þ.e. Nesjavellir I, og upp í 25 millj. 545 þús., sem er Fjarðará. Meðaltalið af þessum virkjunarkostum, sem ég tel að skýlaust eigi að fara eftir, eru 15 millj. 832 þús. Ef þessum útreikningi, sem ég mun láta iðnn. fá, verður ekki mótmælt þá kemur út úr þessu dæmi 47 milljarðar 496 millj. plús háspennulínur 6 milljarðar 775 millj. Ég get látið hæstv. ráðherra fá ljósrit af þessum útreikningum. Ég ætla ekki að krefjast þess að hann svari því nú. Ég vil
gefa honum tíma til þess að svara þeim útreikningum sem ég hef gert og fullvissað mig um að ég hugsi rétt í þessu máli og borið undir menn sem bera fullt skyn á þessa hluti jafnvel þó að kannski einhverjir ráðherrar og þingmenn telji að ég muni ekki hafa það.
Þá er komið að því að skýra frá því að með því að reikna bara 1% rekstrarkostnað, sem er helmingi minna en er nú hjá Landsvirkjun, þá eru afskriftir --- ég tek sama afskriftartíma og Landsvirkjun er með og hv. 1. þm. Reykv. telur hann vera 40 ár, þá er útkoman sú að afskriftir í 40 ár eru 1
milljarður 375 millj. Rekstrarkostnaður metinn rétt rúmlega 1%, sem er allt of lágt, 560 millj. Ef reiknað væri með 6% vöxtum yrðu það 3 milljarðar 300 millj. eða um 28,6 mill sem mundi vera um 1,75 kr. En ef reiknað væri með 9% vöxtum þá yrðu þessar tölur 37,6 mill eða í kringum 2,30 í íslenskum krónum.
Ég er hér með ljósrit af plaggi sem ég fékk um háspennulínurnar. Ég ætla ekki að fara að lesa þær tölur upp, en samtals eru það eins og ég sagði áðan 6 milljarðar 775 millj. En þarna vantar alveg spennivirkin. Ég fór að athuga reikninga Landsvirkjunar í þessu efni. Þar eru háspennulínurnar og spennivirkin metin á rúma 18 milljarða. Ég botna ekkert í því að það skuli vera lagt hér fram frv. þar sem er ekki minnst á spennivirki. Nú er auðvitað hægt að deila um það eins og annað hvað á að reikna háa vexti. Hér á landi eru raunvextir þeir lægstu hjá ríkisbönkunum 7,5%, en hjá sumum bönkunum 8,25%. Á Íslandi eru því vextir í kringum 8% í bankakerfinu. Vextir erlendis eru enn þá hærri. Ég var að fá þetta upp í dag, t.d. í Englandi eru vextirnir rúmlega 15% á 12 mánaða lánum, DEM rúm 9%. Það lægsta eru 9,2 og upp í 15%. Það er talið að verðbólga erlendis sé 2--3% ef tekið er meðaltal af öllu. Og svo er annað, það er auðséð að vextir eru að hækka. Ég var að frétta það núna rétt fyrir stundu að í Sviss hafa vextir enn hækkað.
Það er nokkuð athygli vert að í þeim skýrslum sem ég hef séð er reiknað með að þessir aðilar sem eru að hugsa um að byggja hér álver leggi fram 12 milljarða eigið fé, en þeir gera ekki litla arðsemiskröfu af því fjármagni því að strax á árinu 1995 reikna þeir með að fá 2,3 milljarða eða rúmlega 19%. Á sama tíma er verið að ræða það, skrifa 42 bæjarfélögum og hreppum, hvað viljið þið leggja til í þessu efni?
Ég fékk skýrslu um hvernig hefur verið staðið að því að fylgjast með álbræðslunni í Straumsvík, Ísal. Því var lofað þar, það er í samningnum að þeir munu sjá til þess að koma í veg fyrir mengun eins og tök eru á. Það voru ekki settar neinar mengunarvarnir. Hollustuvernd ríkisins gerði kröfu um það 1973 og hvað liðu mörg ár þangað til þessar mengunarvarnir voru settar upp? Þær komu ekki fyrr en eftir níu ár eða 1982. Fjórum árum þar á eftir eða 1986 var gerð sú eina könnun sem gerð hefur verið af opinberum íslenskum aðilum. Í þeirri skýrslu stendur að allt sé óviðunandi og það fjórum árum eftir að þessi tæki komu upp. Þeir ætluðu að setja þær reglur að ekki færi nema 1 kg flúor út á hvert tonn en þeir treystu
sér ekki til að semja um að það yrði minna en 2 kg og gátu svo ekki einu sinni staðið við það þegar þessi mæling fór fram. Eru það svona vinnubrögð sem við eigum að reikna með að verði höfð í frammi hér eftir? Því er borið við af þeim aðilum sem eiga að gera þetta að þeir hafi ekki fengið fjármagn til þess.
Ég var á fundi norður í Eyjafirði á sunnudaginn sem nokkrir menn boðuðu til þess að upplýsa hvað það mundi þýða að fá álver við Eyjafjörð. ( Forseti: Forseti vill nú inna hv. 6. þm. Norðurl. e. eftir því hvort hann gæti lokið ræðu sinni fljótlega eða hvort hann kýs frekar að fresta henni núna og hefja hana á nýjan leik þegar fundur hefst kl. 8.30). Já, ég mundi gjarnan vilja það. --- [Fundarhlé.]
Herra forseti. Ég var kominn þangað í ræðu minni að ég var að minnast á fund sem ég fór á norður í Eyjafirði á sunnudaginn var. Þar var fullt hús og 22 ræður fluttar. Enginn sem tók til máls vildi álver, en tveir sögðu: Það er engin atvinna. Við vitum að þetta er ekki góður kostur og þá ætti ekki að fara til Eyjafjarðar eins og landslag er þar, veðrátta og gróður. Einn af þeim sem þar töluðu minnti mig svolítið á Ragnar Reykás. Þarna tóku til máls m.a. náttúrufræðingur, dýralæknir og iðnráðgjafinn í Eyjafirði. Í ræðum þeirra kom fram að ef byggt yrði 400 þús. tonna álver í Eyjafirði væru miklar líkur á því að 80 jarðir yrðu að hætta hefðbundnum landbúnaði. Það kom líka fram á fundinum að norska fyrirtækið sem tók að sér hér um árið fyrir staðarvalsnefnd að kanna dreifingu mengunarefna sagði: Það er engin leið fyrir okkur, við höfum ekki getað mælt hvernig dreifingin yrði innan við Akureyri og fram Hörgárdal og Öxnadal.
Ég gerði mér ferð niður í Hollustuvernd ríkisins og talaði við fólk sem þar vinnur. M.a. spurði ég hvort hægt væri að reikna með því að dreifingin yrði lík og reykurinn frá síldarverksmiðjunni á Hjalteyri hefði verið í gamla daga á meðan hún var og hét. Ég spurði hvort þetta efni mundi hafa þá eiginleika t.d. að falla fyrr til jarðar en reykurinn og ekki dreifast eins um. Svarið sem ég fékk var að það væri alls ekki líklegt. Hæstv. ráðherra sagði hér í gær að reiknað væri með því að það væri eitt kíló af flúor á hvert framleitt tonn. Ég spurði Ólaf Pétursson hvort þeir miðuðu við það og hann taldi það vera. En ráðgjafi Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hefur verið upplýstur um allt annað.
Hann var kominn ofan í 300 grömm þegar best lét á fundinum. Það má líka minna á að gerðar hafa verið mælingar hér á útbreiðslu flúors frá Straumsvík. Ég var að fá núna inn á borð hjá mér þær upplýsingar og hef ekki haft tíma til þess að kanna þær, en vonast til þess að ég verði búinn að kanna það fyrir 2. umr. En það er að mér var sagt ,,svört skýrsla``.
Forstöðumaður Hollustuverndar ríkisins, Ólafur Pétursson, segir m.a. um umhverfisáhrif frá álverksmiðjum: ,,Blöð, blóm og ávextir geta orðið fyrir skemmdum en líklega eru blöðin næmust. Annar mjög mikilvægur eiginleiki flúors er að hann safnast saman í plöntum þannig að flúorstyrkur í plöntum
getur orðið tiltölulega mikill þótt styrkur í andrúmsloftinu sé lítill. Vegna þess að plöntur safna í sig flúor er líklegt að grasætur sérstaklega verði fyrir áhrifum umfram önnur dýr af völdum flúormengunar. Nautgripir eru taldir viðkvæmastir og eru 25--40 PBM flúor í þurrefni fóðurs talin vera þolmörk. Flúor sest fyrir í beinum dýra og veldur m.a. tannlosi og tannsliti. Beinin verða hrjúf og stökk og liðamót stirð. Brennisteinstvíoxíð er mjög varanlegur mengunarvaldur í heiminum í dag þar sem talið er að hann sé aðalástæðan fyrir súru regnvatni. Áhrif á dýr og menn er fyrst og fremst í öndunarfærum og háð styrk efnisins í andrúmsloftinu og hve oft og hve lengi hvert sinn mengunin á sér stað. Áhrif kerbrota frá álverinu í umhverfi fer alfarið eftir þeirri förgunaraðferð sem valin er.`` Kerbrot innihalda mikið af flúorsamböndum og ég læt þetta duga hér nema til viðbótar: ,,Umhverfisröskun af völdum álvers er mjög háð gróðurfari, landnýtingu og dreifingu mengunarefna í lofti þar sem ljóst er að ekki er hægt að segja fyrir um styrk flúors í gróðri og grasætum.`` Þótt aukningu flúors í andrúmsloftinu megi áætla út frá forrannsókn þá telur Ólafur Pétursson mjög vafasamt að blanda saman áliðnaði og landbúnaði.
Ég kom áðan að því hver hlutur kvenna væri í störfum t.d. hjá Ísal. Þar kom fram að þær eru 9,6% eða ein kona á móti hverjum níu körlum. En konur í byggingarstarfsemi eftir skýrslu Byggðastofnunar eru aðeins 6%.
Í Norður-Noregi er verið að gera stórt átak til að auka atvinnumöguleika fyrir konur. Norsk stjórnvöld telja það einustu leiðina til að stöðva fólksflutningana frá Norður-Noregi suður á bóginn. En hvað eru hæstv. ráðherrar, ríkisstjórn og stjórnarþingmenn að hugsa? Ef ekki verður gert átak, ef svo færi sem ég trúi ekki að nokkrum lifandi manni detti í hug að setja álver niður í Eyjafjörð vegna þess að ég vil spyrja hæstv. ráðherra báða, hæstv. forsrh. og iðnrh., á hvaða stað ætti síst að setja niður álver ef ekki í Eyjafirði. Eða þekkja þeir kannski það lítið til veðurfars og gróðurs í Eyjafirði að þeir halda að þar sé rétti staðurinn. Ef menn ætla að leggja niður allan landbúnað á Íslandi þá skil ég þetta vel. Hvergi á landinu er eins mikil framleiðsla á jafnlitlu svæði og í Eyjafirði. T.d. er yfir 20% af mjólk framleidd þar. Svo gæti farið, ef það er rétt sem kom fram hjá þessum sérfræðingum sem töluðu á fundinum, að á 80 jörðum yrði að hætta hefðbundnum búskap ef sett yrði 400 þús. tonna álver við Eyjafjörð. Ef það er rétt þá þarf þetta fólk sem þar er að hafa atvinnu, það missir sína atvinnu. Það verður að fara með þessa framleiðslu eitthvað annað og hver vill bera ábyrgð á slíku?
Það er auðvitað dálítið merkilegt ár, merkilegt vor 1990. Í dag er miðvikudagur. Það á að vera eldhús annað kvöld. Þingslit eiga að vera á laugardag og við erum hér að fjalla um stærstu málin, fiskveiðikvótann og fiskvinnslumálin og þetta mál. Það á að hespa það af á þessum dögum.
Engin rök eru fyrir þeim útreikningum sem eru í greinargerð með frv. Haft var eftir hæstv. forsrh. hér
á dögunum að sumir í Atlantal-hópnum vildu ekki byggja álver hjá Straumsvík því ef mengunarslys yrði þyrfti að liggja ljóst fyrir hvorum aðilanum væri um að kenna. Þetta sýnir að bæði þeir sem ætla að fara að byggja þessar verksmiðjur og forsrh. gera ráð fyrir því, sem eðlilegt er, því þessi mengunarslys eru alltaf að eiga sér stað. ( Forsrh.: Hvar var þetta?) Þetta var í útvarpi, haft eftir hæstv. forsrh. Ég vonast til þess að ég eigi þetta, þannig að ef ég hef ekki tapað því þá mundi ég lofa ráðherranum að sjá það.
Sautján læknar frá Norðurlöndum fóru til Póllands í byrjun apríl sl. til að kynna sér ástandið þar og þá fyrst og fremst ástand vegna mengunar. Þeir komu m.a. á sjúkrahús og fæðingardeild þess. Þar var þeim sagt að 15% af börnum sem fæddust þar væru vansköpuð. Þeim skildist að læknar þar álitu að vansköpunin stafaði af kjarnorkuslysinu í Tsjernóbíl í Rússlandi. Norrænu læknarnir fengu upplýsingar um hver geislamengun hefði orðið þar og komust að þeirri niðurstöðu að hún væri síst meiri en á sumum stöðum í Svíþjóð. En þar hafa engin vansköpuð börn fæðst. Álit þeirra var að vansköpunin stafaði af koparnámum og álbræðslu.
Í síðasta hluta marsmánaðar kom eftirfarandi frétt í Ríkisútvarpinu: Kanadísk stjórnvöld hafa fyrirskipað opinbera rannsókn á því hvers vegna óvenjumörg vansköpuð börn hafa fæðst nærri kjarnorkuveri í iðnaðarbæ í Québec á síðustu tveimur árum. Bændur í sveitum nærri kjarnorkuverinu greina einnig frá því að mikið hafi fæðst af vansköpuðum skepnum á sama tíma. Kjarnorkuver í þessum bæ hóf starfsemi 1982. Hópur sérfræðinga mun rannsaka hugsanlega geislun frá verinu, mengun frá álverum og öðrum verksmiðjum í nágrenninu. Sérfræðinga þar grunar jafnvel að það geti verið út frá álverum.
Víða koma fram grunsemdir um mjög skaðlega mengun frá álverum og rannsóknir vegna þeirra grunsemda fara fram. Iðnþjóðirnar leggja kapp á að byggja
álbræðslur utan sína heimalands og þróunarríkin eru í stórhættu vegna þessarar
stefnu og ásóknar álbræðsluauðhringa. Fólk er varað við að setja ílát úr áli í þvottavélar vegna útfellingar álsins. Grunsemdir eru uppi um hvort ekki sé vafasamt að nota álílát undir matvæli. Rannsóknir fara fram á því og einnig fleiri málmum. Í Svíþjóð og fleiri Evrópulöndum eru menn orðnir hræddari við aðra mengun en frá kjarnorkuverum. Þrátt fyrir þetta allt erum við Íslendingar að sækjast eftir að hér verði byggt risastórt álver og sumir vilja að það verði staðsett í blómlegasta landbúnaðarhéraði landsins, við tiltölulega þröngan fjörð umkringdan háum fjöllum þar sem landslag og veðurfar er með þeim hætti að síst ætti að setja niður álver þar eða aðra mengunarríka framleiðslu. Er okkur Íslendingum ekki sjálfrátt? Er kæruleysið orðið svo yfirþyrmandi að menn ana út í hvað sem er án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum? Getur verið að minnimáttarkenndin eða þjónkunin við erlenda auðhringa ráði ferðinni? Ég get a.m.k. ekki séð eða skilið að heilbrigð skynsemi ráði
í þessu máli.
Þið ráðamenn, sem sýnt hafið skilning á þörfinni fyrir atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði og annars staðar, ég vil spyrja ykkur; er ekki fýsilegri kostur að styðja hugvit og krafta kvenna og karla t.d. við Eyjafjörð en að halda áfram þessum blindingsleik sem hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir byggðarlögin, fyrir þjóðina alla? Það er ekki einu sinni sannað mál, langt frá því að það sé sannað mál, að álver sé þjóðhagslega hagkvæmt, eins og það heitir, að álver skapi okkur efnahagslega betri lífskjör en önnur uppbygging.
Úr því að hægt er að fá fjármagn til þess að byggja álver, getum við þá ekki sameinast um að nýta þá fjármagnsmöguleika til skynsamlegri atvinnuuppbyggingar, bæði við Eyjafjörð og á landinu öllu? Eða er álver orðið átrúnaðargoð íslenskra ráðamanna?
Niðurstaða mín er þessi:
1. Álver er ekki hagkvæmur kostur fyrir okkur Íslendinga.
2. Við höfum mjög takmarkaða hagkvæma virkjunarkosti og verðum að hafa það í huga við verðlagningu orkunnar.
3. Við Íslendingar eigum fyrst og fremst að framleiða matvæli. Mengunarfyrirtæki eins og álver og matvælaframleiðsla fara ekki saman.
4. Við eigum ekki að fara eftir atvinnustefnu sem verður til þess að þjappa þjóðinni saman á 2--3 staði á landinu. Eða er það kannski stefna núv. ríkisstjórnar?
5. Við verðum að byggja atvinnulífið upp á þann veg að það henti jafnt fyrir konur og karla. Það gerum við ekki með byggingu álbræðslu.
6. Eyjafjörður kemur ekki til greina að mínu mati undir álverksmiðju, vegna landslags, gróðurs og veðurfars.
7. Norsku sérfræðingarnir sem staðarvalsnefnd fékk til þess að mæla hvernig mengun frá álveri við Dysnes mundi dreifast um byggðir Eyjafjarðar komust að þeirri niðurstöðu að það færi eftir magni þeirra efna sem færu út í andrúmsloftið. Þeir gátu ekkert um það sagt hver dreifingin yrði um Hörgárdal og innan við Akureyri.
8. 200 þús. tonna álver, hvað þá tvöfalt stærra, mundi verka sem krabbamein í eyfirskum byggðum. Viljið þið, hæstv. ráðherra og hv. alþingismenn, taka slíka ábyrgð á ykkur?
9. Ég hygg að Akureyri og eyfirskar byggðir muni ekki lengur hafa aðdráttarafl fyrir ferðamenn ef álver rís þar og blámóða byrgir sýn.
10. Ég hygg að landbúnaðarframleiðslu verði stefnt í verulega hættu ef álbræðsla rís við fjörðinn.
11. Risastórt álver er ekki byggðamál, hvar sem það verður sett niður, heldur andhverfa þeirrar byggðastefnu sem flestir flokkar, ef ekki allir, hafa þóst berjast fyrir.
12. Nú eru 90% líkur fyrir því að álverið verði sett niður á Vatnsleysuströnd og dregið verði úr öllum framkvæmdum annars staðar eða að miklu leyti á
byggingartíma þess. Telja landsmenn slíka uppbyggingu æskilega og munu þeir styðja hana?
13. Það er kátbroslegt að vera að setja á stofn umhverfisráðuneyti á sama tíma og rætt er um að byggja 400 þús. tonna álver á Íslandi.
Hæstv. forseti. Ég las í blaði sem heitir Fjármál nokkuð athyglisverða grein eftir hv. 1. þm. Reykv. Hann vill halda því fram að Ísal sé hér um bil búið að borga það hlutfall í virkjunum sem nemur því sem þeir fá af orkunni. Það kemur í ljós við könnun að Landsvirkjun metur sínar framkvæmdir í orkunni á 80 milljarða. En Ísal borgar 1 / 8 eða tæpa 10 milljarða. Ef maður athugar hvernig þetta kemur út eins og það er nú, þó það væri ekki meira, þá kemur í ljós að það þolir ekki meira en 4,5% vexti og með því móti borgar það ekki niður þessa upphæð. En auðvitað verðum við að átta okkur á því umhverfi sem við erum í nú. Það passar nokkurn veginn að Straumsvík þurfi svipaða orku og Fljótsdalsvirkjun kemur til með að framleiða. Fljótsdalsvirkjun með línu og öllu kostar töluvert yfir 20 milljarða. Virkjunin sjálf 18--19 milljarða fyrir utan línu og annað sem tilheyrir. Ef þeir fengju orku frá þessu fyrirtæki þyrftu þeir að borga 2,30 kr. og mundu þó ekki borga neitt niður.
Ég vil leggja eftirfarandi spurningar fyrir hæstv. iðnrh.:
1. Er ekki eðlilegt og skylt miðað við lög að orkuverð til stóriðju verði miðað við meðaltal byggingarkostnaðar þeirra 15 virkjunarkosta sem áætlanir liggja fyrir um ásamt kostnaði við byggingu háspennulínu og spennivirkja?
2. Við hvaða vaxtagreiðslu af byggingarkostnaðinum öllum þarf að miða svo að borð verði fyrir báru, eins og hæstv. ráðherra nefndi hér í ræðu sinni í gær?
Ég fer nú að ljúka máli mínu í þetta sinn. Ég mun verða á móti því að þetta frv. nái fram að ganga. Ég tel óskynsamlegt að fara í meiri kostnað en þegar er búið og þar á ég við Blönduvirkjun. Ég skil vel þessa erlendu álfursta að þeir vilji fyrst láta virkja og koma svo og semja og pressa niður verðið af því að þá standa stjórnvöld og þjóðin frammi fyrir gerðum hlut og ekki um margt að velja. Talað er um að búið sé að greiða mikið niður af þeim virkjunum sem við eigum. Eftir því sem bókfært er er það rúmur helmingur. Skuldin er, ef ég man rétt, um 36 milljarðar. Er það meiningin að nota þetta fjármagn að einhverju leyti til að kaupa þessa auðhringa til að byggja álver á Íslandi? Þeir krefjast rúmlega 19% ávöxtunar, gera 19% ávöxtunarkröfu sjálfir og það á fyrsta starfsári verksmiðjunnar. Ég held að menn verði að hugsa dálítið út í það.
Að síðustu vil ég segja þetta af því að ég hef skoðað þetta mál að ég tel niður í kjölinn. Ég viðurkenni að mér getur eitthvað skjátlast, en ég hef borið þetta undir ýmsa og vildi fá svör við þeim spurningum og þeim útreikningum sem ég hef lagt fyrir, alveg undanbragðalaust. En ég tel einnig afar athugavert hvað völd og þekking þeirra sem stjórna málum sem tengjast þessu máli eru á fárra höndum.
Formaður ráðgjafarnefndarinnar sem stjórnar viðræðum við Atlantal-aðilana er Jóhannes Nordal. Hann er einnig formaður stjórnar Landsvirkjunar, sem verður aðalframkvæmdaraðilinn af hálfu Íslendinga. Og hann er jafnvel formaður bankastjórnar Seðlabankans sem hefur eftirlit með erlendum lántökum þjóðarinnar og spyr ekki alltaf að, eftir því sem mér sýnist. Ég tel það óforsvaranlegt að fela einum manni svo mikil völd og að láta vinna svona stórt mál með þeim hraða að lítill og raunar enginn tími gefist til þess að kynna stefnumið og meginþætti málsins fyrir þjóð og þingi.
Virðulegi forseti. Ég læt máli mínu hér með lokið en tek sjálfsagt til máls við 2. umr. þegar ég verð búinn að átta mig á þeirri skýrslu sem mér var að berast í hendur og ræði kannski svör ráðherranna ef þau verða einhver. En ég mun líka reyna að koma því í fjölmiðla sem ég hef athugað í þessu máli og þá fæ ég vonandi viðbrögð þeirra sem stjórna þessum málum.