Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Þetta er orðin alllöng umræða. Hér hafa níu þingmenn tekið til máls auk frummælandans og borið fram margvíslegar spurningar og athugasemdir. Þess er naumast kostur að svara því öllu í einni ræðu hér í hv. þingdeild. Ég hlýt þó að tæpa aðeins á því sem mér virðist mikilsverðast í því sem hér hefur komið fram. Ég vil einnig leyfa mér að benda á að um mörg þau atriði sem hér hafa verið tekin til umræðu hafa þegar komið fram margvíslegar upplýsingar í hv. iðnn. þessarar deildar og koma væntanlega enn í starfi nefndarinnar, en ég met það mikils að það hófst áður en þessari 1. umr. lauk.
Ég ætla þá fyrst að víkja að því sem kom fram í máli hv. 1. þm. Reykv. Ég vildi byrja á því að leyfa mér að vekja athygli hans á því að ég hef ekki lýst því yfir á þessu þingi að ég mundi leggja fram á því frv. til heimildarlaga um nýtt álver. Slíka yfirlýsingu hef ég ekki gefið. Hins vegar hef ég lýst því yfir fyrr á þessu þingi --- og gerði reyndar snemma á þinginu --- að ég mundi leggja þingmál fyrir þingið varðandi þetta mál, þ.e. byggingu nýs álvers, þáltill. og/eða frv. um nauðsynlegar virkjunarheimildir vegna álvers. Þetta segi ég ekki af því að það skipti ákaflega miklu máli en ég hef orðið var við að hv. þm. hefur haft þessa skoðun eða misskilið orð mín og framlögð gögn fyrr á þinginu. Það skiptir reyndar ekki öllu máli því það sem mikilvægast er nú er að þetta frv. er forsenda þess að Landsvirkjun og aðrir virkjunaraðilar --- því ég vek athygli á því að hér er ekki eingöngu um Landsvirkjun að ræða heldur líka önnur orkuöflunarfyrirtæki eins og Hitaveitu Reykjavíkur --- frv. er forsenda þess að þau geti hafist handa af skynsamlegu viti þegar samningar um hið nýja álver verða í sjónmáli á sumrinu, sem í raun og veru þýðir líka að við vinnum ár í framkvæmdatíma. Sérstaklega á þetta við um Fljótsdalsvirkjun þar sem brýna nauðsyn ber til að byrja í sumar ef unnt á að verða að framleiða þar rafmagn veturinn 1994--1995. Það þarf að hefja undirbúning framkvæmda og undirbúningsframkvæmdir á þessu sumri. En ég fullvissa hv. þingdeild um að til slíkra verka verður ekki gengið fyrr en næsta víst er að úr samningum verður. En það breytir ekki því að til þess að málið sé rétt stofnað þarf að liggja fyrir rétt heimild þingsins til fjárútláta og til þeirra verka sem vinna skal með því afli sem framkvæmdaraðilunum yrði þannig veitt.
Hv. 1. þm. Reykv. vék, eins og margir aðrir af þeim níu sem hér hafa talað, að staðarvalinu. Um það mál vil ég, með leyfi forseta, vitna til samþykktar sem ríkisstjórnin hefur gert um það mál. Hún er reyndar
prentuð á bls. 16 í athugasemdunum með stjfrv. og er á þessa leið:
,,Í framhaldi af viðræðum við Atlantal-aðilana og undirritun yfirlýsingar um byggingu nýs álvers, dags. 13. mars sl., og vegna umræðu sem fram hefur farið í landinu um staðarval fyrir nýtt álver, lýsir ríkisstjórnin því yfir að af hennar hálfu verður lögð
rík áhersla á að staðarvalið stuðli að jafnvægi í atvinnu- og byggðaþróun auk þess sem tekið verði tillit til arðsemis- og umhverfissjónarmiða.``
Um þetta er fullt samkomulag í ríkisstjórninni og ég er fyrir mitt leyti ekki tilbúinn til þess, hvað sem líður mínum persónulegu skoðunum eins og gjarnt er að menn segi, að ganga lengra í yfirlýsingum um málið að svo stöddu, enda tel ég að staðarvalið eigi og hljóti að ráðast í samningum eins og önnur mikilvæg atriði í málinu. Það er ekki skynsamlegt og horfir ekki til þess að tryggja Íslendingum þá bestu samningsaðstöðu sem þeir geta haft, að binda þennan þátt málsins fyrr en menn hafa í sjónmáli heildarsamninga. Þetta er í raun og veru allt sem segja þarf um málið.
Ég tek á vissan hátt undir það sem kom fram í máli hv. 1. þm. Reykv., en minni hann þó á að margir þingmenn úr hans flokki hafa flutt tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu og rekstur stóriðjuvers á landsbyggðinni. Þar eru a.m.k. sex samflokksmenn hans og eingöngu af þeim yfirlýsingum sem menn hafa gefið hér í þessari umræðu er óhætt að bæta við tveimur, ef til vill fleirum, með því að vitna til þess sem sagt hefur verið utan þings eða innan um málið. Með þessu er ég ekki að efna til neinna orðahnippinga við hv. þm., ég bendi honum bara á þetta sem eitt af sjónarmiðunum í málinu sem mikilvægt hlýtur að teljast og sem dæmi um þann pólitíska vanda sem okkur er á höndum, mér og öðrum sem að þessu verki starfa með mér, að ráða skynsamlega fram úr. En vegna þess sem kom fram í máli hv. 1. þm. Reykv. um aðferðirnar við staðarvalið og reyndar 2. þm. Reykv. líka sem gekk svo langt í sinni gamansemi að jafna þessu við silfur Egils sem þó var aldrei dreift og ég leyfi mér að minna hv. þm. á að ekki neitt í líkingu við það hefur hér verið haft í frammi. Það sem hefur einfaldlega gerst er að við höfum gert um það samkomulag með okkar viðsemjendum og samstarfsaðilum að kanna staðhætti, kostnað og umhverfisáhrif og margt annað sem menn geta látið sér detta í hug að skipti máli fyrir staðarvalið á fjórum allstórum svæðum: við Eyjafjörð, við Hvalfjörð, við Reyðarfjörð og á Reykjanesi --- á öllum skaganum. Það verk verður unnið skipulega og skynsamlega og þykir mér satt að segja furðulegt ef mönnum finnst það undarleg vinnuaðferð að leita samstarfs við sveitarfélögin
sem ráða náttúrlega mörgum þáttum málsins. Það sem einfaldlega gerðist var að Atlantsálsfyrirtækin óskuðu eindregið eftir því að fá sjálf að skrifa sveitarfélögunum og inna þau eftir viðhorfum þeirra til byggingar álversins. Og það var að sjálfsögðu orðið við þeim óskum. Ég taldi hins vegar nauðsynlegt einmitt vegna þess sem kom fram í máli hv. 2. þm. Reykv., að það væri hyggilegt að raða saman ýmsum mikilvægum þáttum í þessum svörum, og láta fylgja allítarlega greinargerð til þessara sömu sveitarfélaga frá iðnrn. og samverkamönnum þess til að auðvelda mönnum samstarf um málið, til að auðvelda mönnum að móta skoðanir heima fyrir í málinu.
Ég leyfi mér líka að benda á að það er ekki fyrr en um síðustu áramót þegar samkomulagið, sem hv. 1. þm. Reykv. sem hæstv. iðnrh. gerði 4. júlí 1988, var útgengið, því það rann út án þess að árangur næðist samkvæmt því, án þess að niðurstaða fengist samkvæmt því og menn gerðu um það formlegan samning að slíta því. Þar með var komin ný staða í málinu og sjálfsagt þá að leita óháðrar niðurstöðu um staðarvalið. Þar verða öll sjónarmiðin sem ég hef hér nefnt tekin til greina og verkið mun vafalaust taka alllangan tíma, en eins og mönnum er ef til vill í fersku minni er að því stefnt að ljúka því um mánaðamótin næstu eða í byrjun júnímánaðar. Þetta um staðarvalið.
Ég kem þá að því sem hv. 1. þm. Reykv. nefndi líka og reyndar margir aðrir þingmenn með honum, að menn þyrftu að varast mjög þensluáhrif af völdum þessara framkvæmda og haga öðrum framkvæmdum í landinu í samræmi við það. Það er vissulega þörf ábending og ég mun fyrir mitt leyti leita eftir því að menn finni þar skynsamlegar leiðir, en tel þó mestu varða á þessu stigi máls að fá heimildir til þess að ráðast í þessar framkvæmdir þegar ljóst þykir að hagnýting orkunnar verði að veruleika. En það er mjög mikilvægt í þessu máli að ráðast ekki í framkvæmdirnar fyrr þótt menn vilji jafnan láta þetta haldast í hendur verður seint hægt að setja þetta upp þannig að menn geti verið með fullbúinn orkusölusamning í höndunum án þess að hafa hreyft skóflu til þess að búa í haginn fyrir virkjanirnar. Það er ekki hugsanlegt í okkar stöðu. Ég minni reyndar á að Blönduvirkjun bíður þess að sala fáist á hennar orku. Því ráða ýmis atvik og m.a. þróun eftirspurnar eftir raforku á Íslandi sem hefur farið aðra leið og lægri en margir bjuggust við fyrir þeim tíu árum sem liðin eru frá því að ákvarðanir voru teknar um það verk.
Hv. 2. þm. Austurl. kom hér mjög að því að þetta væri eitt dýrasta frv. sem fyrir þingið hefði komið og ekki ætla ég að draga úr því að það fylgir því mikil ábyrgð að flytja tillögur um heimildir til svo mikilla útgjalda. Vonandi sannast að það verði dýrast sem lengi hefur geymt verið og að það beri ríkulegan ávöxt í hentugan tíma fram borið, eins og áður hefur verið sagt. Ég er fyrir mitt leyti bjartsýnn á, vongóður um, að svo verði í þetta sinn.
Hv. 2. þm. Austurl. vék mjög að því að hann væri hvorki samþykkur þeirri tillögu sem hér væri gerð um viðbótarvirkjunarheimildir né heldur því að Alþingi fjallaði ekki um virkjanaröð. En í 3. gr. þessa frv. er gerð tillaga um að fela framkvæmdarvaldinu, að virtum ákveðnum meginreglum, röð virkjanaframkvæmda til þess að sinna ákveðinni orkuþörf.
Um fyrsta atriðið, þ.e. viðbótarheimildirnar, leyfi ég mér að benda á að með þeim raforkuveralögum sem sett voru 1981 og þál. um virkjunarframkvæmdir sem samþykkt var 1982 var búið að stofna virkjanaheimildir sem um miðjan áratuginn tíunda, 1995, væru komnar nokkuð fram úr því sem hér eru
gerðar tillögur um að náð verði á því ári. Í raun og veru erum við því fyrst og fremst að endurraða virkjunarkostum, meta þá að nýju í ljósi bestu og síðustu upplýsinga um hvað hagkvæmast er í ljósi breyttrar tækni.
Um síðara atriðið, að Alþingi þurfi ekki með lögum eða þál. að ákveða virkjanaröð í smáatriðum, leyfi ég mér að rifja upp að áður en raforkuveralögin voru sett 1981 þá var þetta nokkurn veginn í þessu horfi. Ég man ekki fyrir víst hver afstaða hv. 2. þm. Austurl., þáv. hæstv. iðnrh., var til málsins, en ef mig misminnir ekki mikið þá var hann á þeim árum frekar á því að iðnrh. ætti að hafa meiri tök á röðinni en niðurstaða þingsins varð að því sinni. Ég tel að reynslan síðan hafi sýnt að sú afstaða var rétt og er rétt, en reyndar er mjög greinilegt af því frv. sem hér er til umræðu að það er ekki verið að hrifsa völd af þinginu því þingið mun líka taka ákvörðun um virkjanirnar sem nauðsynlegar eru ef á að ráðast í þessar miklu framkvæmdir vegna álvers sem marka þá farveg fyrir allar helstu virkjanir fram til miðs áratugsins tíunda og ef til vill nokkru lengur. Reyndar mætti þá segja að heimildin sem leitað er eftir í 3. gr. frv. fjalli mest um að veita nauðsynlegan sveigjanleika til að bregðast við breyttum aðstæðum ef upp kynnu að koma.
Ég vildi líka taka það fram að álits hinna lögfróðustu manna á þessu sviði hefur verið leitað um gerð frv. og hafa þeir ekki að þessu atriði fundið frekar en öðrum í því hvað varðar valdmörkin milli þings og framkvæmdarvalds. Ég er heldur ekki tilbúinn að fallast á að óðagot eða pólitísk kastþröng, en það voru orðin sem hv. 2. þm. Austurl. notaði hér, einkenni þetta mál. Þvert á móti liggur að baki þessu frv. og greinargerðinni með því mikil vinna og
vönduð margra góðra starfsmanna iðnrn., Landsvirkjunar, Orkustofnunar, Hitaveitu Reykjavíkur og annarra stofnana hins opinbera á þessu sviði og sem ég tel að geti verið hreyknir af sínu verki og sé alls ekki rétt að kenna þau störf við flumbrugang eða óðagot.
Ég kem þá að því atriði sem tók einna mestan tíma í máli hv. 2. þm. Austurl. Hann gerði sér tíðrætt um þá aðferð mína til að vekja athygli á mikilvægi málsins að benda á að það færi nærri að eitt tonn af áli frá álbræðslu á Íslandi og eitt tonn af þorski upp úr sjó legðu inn í þjóðarbúið ámóta verðmæti á mælikvarða vergrar landsframleiðslu sem er algengasti hitamælirinn á hagsæld þjóðarinnar þótt ekki sé hann óskeikull. Nú getur hver maður skilið að ekki verður svo stóru máli lýst með einni tölu. Þessi fullyrðing mín er fengin úr athugun sem unnin hefur verið af Hagfræðistofnun Háskólans og lesa má í óbirtri greinargerð prófessors Guðmundar Magnússonar sem gert hefur nokkra líkanreikninga í málinu fyrir ráðgjafarnefnd um þjóðhagsáhrif stóriðju. Þar segir eitthvað á þá leið að samkvæmt áætlunum um nýtt álver vegi það upp m.a. þann tekjumissi sem þjóðarbúið verður fyrir vegna 90 þús. tonna samdráttar í þorskveiði t.d. á móti hverjum 90 þús. tonnum af
áli. Þessi líkanreikningur er auðvitað ekki einhlítur og af honum verða ekki dregnar alveg nákvæmar ályktanir --- ja, þetta er ekki vegið á póstmannsvog, eins og sagt er --- en prófessor Guðmundur heldur því fram að ekki virðist fjarri lagi að þorsktonnið leggi sig á við áltonn í verðmætasköpun þjóðarbúsins. Þessi fullyrðing var svo prófuð á einfaldan hátt með því að líta á verðmætistölurnar í hverju þorsktonni, eins og það er venjulega unnið, og áltonninu, dregnar frá grófar áætlanir um erlend aðföng og þá kom í ljós svipuð niðurstaða þótt alls ekki sé um sama talnagrundvöll að ræða. Ég tel þess vegna að á bak við þessa aðferð til að kynna málið sé traust undirstaða þótt hún segi alls ekki allt um það og vafalaust mætti rekja margt sem gæti gert þennan samanburð eitthvað öðruvísi á aðra mælikvarða. En ég leyfi mér að láta í ljós undrun mína á því að hv. 2. þm. Austurl., sem er vísindalega sinnaður maður, skuli leggja traust sitt á blaðamann á DV sem hafði slegið því upp að þetta væri nú allt öðruvísi og níu sinnum minna miðað við þorsk. Ég tel að þarna þurfi miklu meiri athugun áður en menn geta notað svo stór orð eins og hv. 2. þm. Austurl. gerði hér áðan því miður.
Ég harma það að hann skyldi fara hér með brigslyrði í minn garð þar sem hann sakaði mig um falsanir og hélt því fram að ég væri margfaldur ósannindamaður, mig minnir nífaldur eða eitthvað svoleiðis. Mér fannst hann sveigja mjög að mínum sóma með þessum orðum og allt var þetta orðafar á ystu mörkum þess sem þinglegt getur talist og þeim mun alvarlegra sem hv. þm. situr hér oft á forsetastóli og gegnir því embætti með ágætum. Ég held þess vegna að þetta hljóti að hafa verið einhver misskilningur og þingmaður hafi ekki ætlað sér að segja þetta allt saman. Og hversu hátt og snjallt sem hann les fréttir blaðamannsins í DV þá verða þær ekki sannleikur við það.
Ég kem þá að máli hv. 12. þm. Reykv. Hún vék að því nokkuð í sínu máli að það horfði ekki til fjölbreytni í íslenskum þjóðarbúskap að auka við álframleiðslu. Má ég benda hv. þm. á að við leitum ekki eftir fjölbreytni fjölbreytninnar vegna heldur teknanna vegna, vegna lífskjaranna sem við viljum ná og við veljum eingöngu þær greinar sem standast samkeppni við okkar hefðbundnu útflutningsgreinar hvað varðar tekjumyndun, hvað varðar lífskjör sem þær geta boðið. Eins og nú háttar er álið einfaldlega sá útvegur, sú framleiðslugrein, sem helst stenst þennan samjöfnuð og þess vegna eru hér uppi áætlanir um álver. Það stafar náttúrlega af því að álið er hinn ljósi málmur framtíðarinnar, það er mikil eftirspurn eftir því og hún fer vaxandi. Það er fullkominn misskilningur hjá hv. þm. að þessi eftirspurn sé háð hernaðarbrölti og að hernaður sé aðaluppspretta eftirspurnar eftir áli. Eftirspurn hernaðar eftir áli er einfaldlega sams konar og eftirspurn heimilanna eftir áli, það skiptist nokkurn veginn eins. Ál er notað til alls konar húsbúnaðar, flutninga- og samgöngutækja, umbúða og bygginga og samgöngutækja. Álið er orkusparandi málmur þótt það noti sjálft mikla orku
af því að það léttir svo samgöngutækin. Það er í raun og veru betri ráðstöfun á auðlindum jarðar og umhverfi að færa framleiðsluna til þeirra landa sem geta boðið upp á ódýra orkuöflun án umhverfisspjalla. En umhverfismálin voru einmitt að makleikum mjög fyrirferðarmikil í máli hv. 12. þm. Reykv. og reyndar einnig hv. 6. þm. Norðurl. e. Það er eins og vera ber. En ég leyfi mér að benda hv. þingdeildarmönnum á að við erum hér að ræða orkuverin en ekki iðjuver. Við munum eiga þess kost, vona ég, í þessari hv. þingdeild næsta haust að ræða allar hliðar umhverfisáhrifa áliðjunnar.
Hins vegar taldi ég mér skylt að gera grein fyrir því í grófum atriðum sem mikilvægast þætti í því máli og varðar framkvæmdarkostnað og staðsetningu. Þessu var alls ekki ætlað að tæma þetta mál. Þess vegna vil ég ekki taka mjög langa umræðu um þessi mál, en vil að sjálfsögðu stuðla að því að þingið verði sem allra best upplýst um málið og held því fram að fullkomnustu mengunarvarnir sem áliðnaðurinn þekkir verði hér nýttar. Ég leyfi mér líka að
halda því fram að undirbúningur mats á umhverfisáhrifum þessa iðjuvers sé nú víðtækari, fullkomnari en því miður líka flóknari en fyrr hefur gert verið. Við erum nú í þeirri óvenjulegu aðstöðu að geta nýtt vitneskju sérfróðra manna og reynslu okkar sjálfra og reynslu þeirra þjóða sem hafa heyjað sér hana á þeim 25 árum sem liðin eru frá því að framkvæmdir hófust við álverið í Straumsvík. Mikið vatn hefur til sjávar runnið á þeim árum og hægt er að leysa fyrir fram margvíslegan umhverfisvanda sem reis í álverum af þeirri kynslóð. Þetta er nákvæmlega það sem við getum nú leyst betur en aðrir og kostnaðurinn verður ekki eins mikill og hann hefur því miður reynst verða þegar menn eru að reyna að breyta álverum sem ekki hafa umhverfisvarnir innbyggðar frá fyrstu gerð.
Ég ætla ekki að fara hér í nákvæmar umræður um einstaka þætti mengunar, en það er líka mála sannast að það er mikil nauðsyn á því að Íslendingar eignist nú hóp sérfróðra manna sem þekkja þessa hluti út og inn og þekkja þær alþjóðlegu kröfur og reglur sem gilda um umhverfisvarnir í álverum um allar jarðir. Því miður hefur þetta starf ekki verið nægilega kerfisbundið til þessa, en í starfi ráðgjafarnefndarinnar um samningana við Atlantsálsfyrirtækin og nýskipaðrar ráðgjafarnefndar um umhverfisáhrif stóriðju höfum við einmitt raðað upp öllu þessu efni í samvinnu við færustu erlend ráðgjafarfyrirtæki en um leið byggjum við upp sérþekkingu hér. Og þar koma að sjálfsögðu til íslenskar séraðstæður. Ég furða mig á því að hinn vísindalega þenkjandi 12. þm. Reykv. skuli furða sig á því að menn vilji líta á hvort vatn og jörð eru hér súrari eða miður súrari en gerist í löndunum í kring. Við hljótum að velja umhverfisvarnir í samræmi við okkar staðhætti en ekki einhverra annarra. Í þessu er enginn ásetningur um að hér verði lakar að verki staðið en annars staðar. Ég minni líka á að brennisteinstvíildi kemur upp úr jörðinni á Íslandi, ekki bara frá strompum í verksmiðjum. Ég minni líka
á að það er nálægð við aðra mengunarvalda sem veldur nokkru um hvaða kröfur eru gerðar til nýrra fyrirtækja, ekki eingöngu hvernig umhverfisaðstæðurnar eru í sjálfu sér. Allt þetta verður metið vandlega. Hin nýja ráðgjafarnefnd hefur fyrst og fremst það verkefni að draga saman á skipulegan hátt yfirlit yfir umhverfisáhrif áliðju og álvers, ef til þess kæmi að það yrði reist hér, til þess að mengunarvarnir Hollustuverndarinnar geti tekið á málinu faglega á grundvelli sem er fyrir fram undirbúinn, þannig að Hollustuverndin sé ekki í senn að semja áætlanir um áhrif á umhverfið og framkvæma rannsóknirnar heldur taki við áætlun um það frá framkvæmdaraðilanum. Í þessu tilfelli er það iðnrn. sem ábyrgð bera á framkvæmdinni, en það er ekki á nokkurn hátt verið að varpa rýrð á eða fara inn á verksvið Hollustuverndarinnar eða mengunarvarnanna eða heilbrrn. eða umhverfisráðuneytisins þegar það hefur tekið við þessum verkefnum. Þvert á móti er verið að létta þeim störfin og gera það sem ég tel mjög mikilvægt, að efla sérþekkingu á Íslandi á þessum mikilvæga þætti í iðnaði og iðnaðarframtíð okkar --- og annarra þjóða því að væntanlega getum við einhvern tíma haft gagn af þessari sérfræði annars staðar.
Það er alveg rétt hjá hv. 12. þm. Reykv. að landsframleiðslan og ýmsir aðrir efnahagslegir mælikvarðar á velferð almennings taka ekki nægilegt tillit til áhrifa á umhverfið. Það er að sjálfsögðu rétt en ég leyfi mér að benda á að í þessu verki sem við ræðum hér verður lögð mjög mikil áhersla á að meta þetta til hlítar. Þess vegna kemur það satt að segja á óvart að það verk skuli ekki vera metið til fulls. Og ég segi það af mikilli einlægni að það verður ekkert verk sparað og enginn steinn látinn óhreyfður til þess að þessi hlið málsins verði sem allra best tryggð.
Ég veit ekki hvort ég sé ástæðu til að segja fleira um það sem kom fram í máli hv. 12. þm. Reykv. nema hvað ég vil ítreka það sem ég sagði áðan um staðarvalið, að það er einn af samningsþáttunum en ekki mál sem verður ákveðið einhliða af hinum erlendu álfurstum, eins og hv. 12. þm. Reykv. orðaði það.
Ég kem þá nokkuð að máli hv. 6. þm. Norðurl. e. Hann ræddi hér í löngu máli margar hliðar þessa stóra máls, ekki síst umhverfisáhrif ef álver risi við Eyjafjörð. Ég get fullvissað hv. þm. um það að þeim sem að þessu verki vinna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar er ákaflega vel ljóst að Eyjafjörður er mikilvæg matarkista, mikilvæg náttúruminjaborg, gæti ég næstum sagt, sem ekki má spilla. En það breytir því ekki að geysimargir þar um slóðir vilja koma þarna upp þessu stóra álveri, þessari stóru álsmiðju. Og ég er sannfærður um að það er hægt að standa þannig að því verki að hún spúi ekki eimyrju yfir Eyfirðinga. Ef rannsóknir leiða í ljós að á því sé hætta þá verður niðurstaðan líka í samræmi við það.
Hv. 6. þm. Norðurl. e. vék líka nokkuð að mati á virkjunarkostum og rakti það í löngu máli og einnig kostnað á hverja einingu í uppsettu afli og reyndar
orkuverði. Ég tel best, eins og hv. þm. reyndar sagði sjálfur, að hv. iðnn. þessarar deildar fái að fjalla um þetta efni og býð upp á það að starfsmenn iðnrn. og orkufyrirtækja veiti hv. þm. svör við þessu utan þingfundar þar sem ég tel það efni lítt fallið til orðræðna eins og hér geta farið fram.
Ég kem þá að máli hv. 1. þm. Vesturl. sem vék mörgum orðum að jöfnun
orkuverðs í landinu og vildi tengja það þessu máli. Ég skil vel áhuga hv. 1. þm. Vesturl. á orkujöfnunarmálinu. Ég vildi leyfa mér að benda á að stór skref voru stigin í því máli á síðasta ári, yfirtaka skulda RARIK og Orkubús Vestfjarða um mitt ár 1989, en í kjölfar þeirrar yfirtöku lækkuðu beinlínis taxtarnir fyrir almenna rafmagnsnotkun hjá þessum fyrirtækjum um 5%. Það er reyndar líka talið að þessi yfirtaka hafi komið í veg fyrir kannski 12--15% hækkun sem annars hefði orðið. Ég minni líka á að í kjölfar þessara aðgerða og annarra sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir varð ekki hækkun á gjaldskrá þessara fyrirtækja í ársbyrjun 1990 þegar margar þéttbýlisveiturnar hækkuðu sem samanburðurinn er gjarnan gerður við. Þannig tel ég óhætt að fullyrða að hlutfall milli gjaldskrár fyrir raforku hjá þessum fyrirtækjum, þ.e. landsbyggðarfyrirtækjunum RARIK og Orkubúi Vestfjarða, og þéttbýlisrafveitunum sé nú hagstæðara landsbyggðinni en verið hefur á þessum áratug. Munurinn milli taxtanna hefur minnkað verulega á síðustu árum, en auðvitað er þarna enn bil. En þetta má líka skoða í öðru ljósi. Ef við lítum á hvað þessi orkufyrirtæki, annars vegar RARIK og Orkubúið og hins vegar þéttbýlisveiturnar, fá fyrir hverja selda kwst. kemur í ljós að Orkubúið og RARIK fá minna á hverja kwst. en þéttbýlisfyrirtækin. Það stafar af því að stærri hluti af sölu þeirra fer til upphitunar á húsnæði á miklu lægri gjaldskrá. Þetta minnir menn á að það má ekki hrapa að ályktun um þessa hluti.
Ég get tekið undir það með hv. þm. að mikilvægt sé að halda áfram í jöfnunarátt, fyrst og fremst með framtaki heimamanna sjálfra en líka með opinberum aðgerðum. Ég minni á að það er ekki hægt að gera þetta með einföldum lagabreytingum á gjaldskrá Landsvirkjunar, m.a. vegna þess sem kom fram í máli hv. 2. þm. Reykv., að um Landsvirkjun gilda ekki eingöngu lög. Um hana gildir líka sameignarsamningur eignaraðilanna og í því felst að áður en nokkur slík breyting yrði gerð yrði að nást eða reyna á samkomulag milli eignaraðilanna áður en lagabreytingum væri beitt vegna þess að í landsvirkjunarlögunum er sú einfalda regla sett að sama gjaldskrá skuli gilda fyrir alla sem við fyrirtækið skipta. Ég er með þessu alls ekki að skorast undan því að halda áfram orkujöfnun og fagna því sem fram kom í máli hv. þm. að leita þarf nýrra leiða í því efni.
Ég kem þá að máli hv. 5. þm. Austurl. sem lagði mesta áherslu á að staðarval álvers mótaðist af byggðasjónarmiðum. Ég minni aftur á samþykkt ríkisstjórnarinnar í málinu og tek undir það með hv.
þm. að það er ákaflega mikilvægt að menn freisti þess að draga úr þensluáhrifum þessara framkvæmda með öllum ráðum þannig að ekki valdi ofhitnun í hagkerfinu, en ég held reyndar að við eigum nú að vera betur undir það búin en við höfum lengi verið vegna þess að betra jafnvægi er komið á í þjóðarbúskapnum þegar þessar framkvæmdir yrðu hafnar en lengi eru dæmi um.
Ég kem þá að máli hv. 2. þm. Vestf. Hann fór hér með mjög athyglisverðar hugleiðingar um gjaldskrármál Landsvirkjunar og minnti réttilega á að í fortíðinni hafi stórvirkjanir oft haft miður heppileg áhrif á gjaldskrár til almenningsveitna. Ég tel að sú endurskoðun og endurskipulagning gjaldskrár Landsvirkjunar sem staðið hefur yfir alllengi og ný stefna í því máli eigi að tryggja betur en áður hefur tekist það grundvallarákvæði landsvirkjunarlaganna að stórorkusölusamningar skuli ekki valda hækkun á verði til almenningsveitna. Ég tek undir það með hv. þm. að leita þarf leiða til að halda aðskildum stórorkusölusamningunum og hinni almennu notkun. Þetta er nú í einu reikningskerfi. Ég veit að viðleitni Landsvirkjunar hefur verið sú að tryggja þetta sem allra best. Það má vel vera að við höfum enn ekki fundið réttu lausnina, en ég get fullvissað hv. þm. um það að menn eru sér mjög vel meðvitaðir um þörfina fyrir þennan aðskilnað. Ég lít á það sem ábyrgðarmál mitt, eins og kom raunar fram í máli þingmannsins, að reyna að gera þetta sem tryggilegast og eftir því sem vægið á stórorkusölusamningunum verður meira þeim mun mikilvægara er að sveiflur á þann vænginn lendi ekki eingöngu á þeim sem eru helstu kaupendur á rafmagni til almenningsveitna frá fyrirtækinu. Þetta eru vissulega sjónarmið sem er ástæða til að hafa í huga og ég veit fyrir víst að þeir sem fara með raforkusölumálin af hálfu Landsvirkjunar hugsa þetta mál með sama hætti og hv. þm.
Hv. þm. ræddi hér nokkuð um staðarvalið og mikilvægi þess að landið héldi sínu fólki. Ég er honum algerlega sammála um þetta, en held að leiðin til þess að landið geri það sé nú einmitt að ráðast í svona framkvæmdir sem geti orðið uppspretta hagvaxtar í landinu að nýju. Það er mikilvægast til allra hluta og tengist því sem kom fram í máli hv. 11. þm. Reykn. sem benti á þá skoðun Efnahagssamvinnustofnunarinnar (OECD) að líkur á hagvexti á Íslandi væru heldur dauflegar og horfurnar fyrir næstu ár, enda var þar ekki reiknað með nýrri innspýtingu, neinum nýjum hagvaxtarskammti eins og þeim sem við erum hér að ræða. Hann getur einmitt breytt þessu þannig að við jöfnum metin við þær þjóðir sem við höfum helst samanburð og samkeppni við, ekki um einhvern varning heldur um okkar fólk. Það er að sjálfsögðu það sem býr á bak við þetta mikla mál. Þetta eru ekki bara megawött og milljarðar eða milljarðatugir.
Þetta eru líka manneskjur. Það sem við þurfum nú að gera er að gefa von um að það sé hægt að breyta þessum hagvaxtarhorfum Íslendingum í hag. Með því að samþykkja þetta frv. værum við að leggja okkar
lóð á þá metaskál.
Það er misskilningur hjá hv. 11. þm. Reykn. að þetta mál sé á einhvern hátt áróðursbragð. Ég vonast satt að segja til þess að hv. 11. þm. Reykn. vilji líta á þetta algerlega málefnalega. Ég fullvissa hann líka um að það verður farið mjög varlega í að niðurgreiða aðstöðumun milli svæða. Það er einmitt þess vegna sem ég vil fyrir mitt leyti, og það er skoðun ríkisstjórnarinnar líka, beita mér fyrir því að það verði samið um staðarvalið, það verði ekki einhliða ákvörðun, hvorki íslensku ríkisstjórnarinnar né okkar viðsemjenda.
Ég vil að endingu, virðulegi forseti, ítreka það sem ég sagði hér áðan vegna orða hv. 2. þm. Reykv. sem var sá síðasti sem talaði áður en ég kom aftur í stólinn, að það er alls ekki verið að etja sveitarfélögunum saman til samkeppni. Og mér kom nú satt að segja á óvart hjá fyrsta ræðumanninum, hv. 1. þm. Reykv., þegar hann talaði með miklum fyrirvara og mér fannst næstum fyrirlitningu, að það væri þokkalegt ef það ætti að fara að treysta á einhvern uppboðsmarkað þar sem þetta ætti bara að vera útreikningsmál. Mér fannst hann sýna þar nokkra skipulagshyggju í málinu sem ég átti reyndar ekki von á frá honum. En sannleikurinn í málinu --- þegar maður sleppir gamanyrðum --- er að þetta mál þarf að þroskast í samvinnu við sveitarfélögin. Þess vegna er verið að skrifa þeim. Ég get látið þess getið að ég átti á þessum morgni ásamt forsrh. ítarlegar viðræður við fulltrúa sveitarfélaga á Austurlandi sem einmitt vildu kanna og fara yfir öll atriði þessara bréfaskipta milli Atlantsálsfélaganna og iðnrn. um viðhorf þeirra til hugsanlegrar stóriðju í sínu héraði. Það er vafalaust fyrirhafnarsamt verk, það verður vafalaust tafsamt að fara yfir það með öllum þessum sveitarfélögum. Vonandi finna þau sjálf leiðir til samstarfs og þá er sannarlega vel.