Raforkuver
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Ég hygg að aðeins einni spurningu hafi verið til mín beint. Hv. 1. þm. Reykv. vildi fá nánari útlistun á því sem ég hef sagt um mikilvægi byggðamála í sambandi við byggingu álbræðslunnar. Ég skal reyna að gera það í mjög stuttu máli. Ég vil í fyrsta lagi benda á samþykkt ríkisstjórnarinnar þar sem segir að ríkisstjórnin vilji með byggingu álbræðslunnar stuðla að eðlilegri byggðaþróun og atvinnuöryggi. Og ég vil líka vekja athygli á því að allar þær ríkisstjórnir sem láta sig byggðamál varða verja til þeirra töluverðu fjármagni og sumar mjög miklu fjármagni. Ég bendi á Norðurlöndin, Norðmenn, Svía t.d. og reyndar fleiri, eins og Breta sem verja mjög miklu fjármagni til byggðamála. Í mínum huga er það í raun og veru bara reikningsdæmi hvort til greina getur komið að á einn eða annan máta, sem kannski kostar eitthvert fé, að stuðla að því að álbræðslan verði þar byggð sem stuðlar að betra byggðajafnvægi og atvinnuöryggi. Ég hef margsinnis sagt að ég tel ekki skynsamlegt af þessum ástæðum að byggja á höfuðborgarsvæðinu. Ég er ekki að áfellast fyrri áætlanir um Straumsvík, það var af allt annarri ástæðu sem Straumsvík varð þá fyrir valinu og það er allt annað mál. En ég tel fyrir þjóðarbúið í heild ekki skynsamlegt að byggja svona álbræðslu á þessu svæði. Það er talað um að hún stækki. Ég efa ekki að Straumsvík stækkar, hún hlýtur að verða stækkuð og jafnvel fljótlega. Ég held að við eigum að dreifa þessu víðar.
    Ég er ekki tilbúinn að ræða hér hvað kemur til greina af hálfu stjórnvalda eða opinberra aðila til að stuðla að þessu. Ég er á þeirri skoðun að það eigi að vera liður í þessum samningum öllum þegar það liggur fyrir, þegar hagkvæmnin hefur verið athuguð á mismunandi stöðum. Ég vek t.d. athygli á því að ef það á að stækka þessa verksmiðju í 400 þús. tonn þá er líklega hagkvæmast að byggja hana á Austfjörðum því þar verður viðbótarorkan næst. Þar er mesti möguleiki til að virkja fyrir önnur 200 þús. tonn. Og ég spyr, ég veit ekki hvort það hefur verið tekið inn í dæmið enda er þetta nýlega komið fram að þeir vilja hafa þennan möguleika. Ég held að dæmið sé miklu flóknara en svo að menn geti sagt að þetta eigi að gera en ekki hitt í þessu skyni. En ég tel að það eigi að skoða þann möguleika mjög vandlega hvort það getur talist hagkvæmt í okkar byggðamunstri og okkar viðleitni til að stuðla að byggðaþróun, að ríkisvaldið noti eitt eða annað sem það hefur á sínu valdi til að verksmiðjan verði byggð þar sem best verður slíkum markmiðum náð.