Frsm. 1. minni hl. heilbr.- og trn. (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 1. minni hl. heilbr.- og trn. 1. minni hl. skipa hv. 3. þm. Reykv. Sólveig Pétursdóttir auk þess sem hér talar.
Um það frv. sem hér liggur fyrir er ekki efniságreiningur að öðru leyti en því að um 1. gr. frv., þ.e. 3. gr. gildandi laga um Atvinnuleysistryggingasjóð, er verulegur ágreiningur um grundvallaratriði. Þeim ágreiningi var nokkuð lýst í framsögu talsmanns meiri hl. nefndarmanna og honum er sömuleiðis lýst í greinargerð með frv. Þessi ágreiningur er ekki nýr af nálinni, heldur er hér um að ræða áragamlan ef ekki áratuga gamlan ágreining um það hvort almenn réttindi til þess að njóta bóta í atvinnuleysi, til þess að njóta bóta úr opinberum sjóði sem heitir Atvinnuleysistryggingasjóður, eigi að vera bundinn því skilyrði að viðkomandi bótaþegi sé félagsmaður í verkalýðsfélagi.
Við nokkrir þingmenn sem teljum að slík almenn réttindi eigi ekki að vera bundin slíkum skilyrðum erum þeirrar skoðunar að það sé mannréttindabrot að hafa ákvæði laganna eins og þau eru og viljum þess vegna breyta þeim. Við erum ekkert einir um þetta. Það eru ekki einhverjir örfáir sérvitringar á Alþingi sem hafa þessa skoðun. Þetta er skoðun sem fram hefur komið hjá sérfræðinganefnd Evrópuráðsins sem fjallar um framkvæmd félagsmálasáttmála Evrópuráðsins sem Ísland á aðild að og er skuldbundið að fara eftir.
Þetta mál er þess eðlis að þess er ekki að vænta að úrslit í því geti fengist í einhverjum viðræðum milli aðila vinnumarkaðarins. Auðvitað er ekki hægt að ætlast til þess að fulltrúar alþýðusamtakanna og verkalýðsfélaganna afsali sér réttindum, sem ég vil reyndar kalla forréttindum, sem þessi samtök hafa. Auðvitað gera þau það ekki í frjálsum samningum. Þetta er vitanlega atriði sem löggjafarvaldið verður að taka á og leysist ekki með öðrum hætti.
Hér er tækifæri til að leysa úr þessu máli og við í 1. minni hl. nefndarinnar teljum að það eigi að grípa það tækifæri. Við höfðum reyndar ástæðu til að ætla að meiri hluti væri í nefndinni fyrir því að gera hér breytingar á, en komið hefur í ljós að svo er ekki. Skal ég ekki fara með skýringar á því, en það vekur óneitanlega nokkra furðu ef þingnmenn sem starfa á vettvangi Evrópuráðsins styðja ekki brtt. sem lúta að því að framfylgja ákvæðum félagsmálasáttmála Evrópuráðsins. Það verður auðvitað sérstaklega tekið eftir því hvernig til að mynda hæstv. félmrh. ráðstafar atkvæði sínu í atkvæðagreiðslu um þessar brtt. vegna þess að félmrh. hefur í skýrslu til Alþingis um 76. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 1989, sem hér var útbýtt í síðasta mánuði, greint í ítarlegu máli frá því hvernig þetta mál er á vegi statt að því er varðar félagsmálasáttmála Evrópuráðsins og þær athugasemdir sem íslenskum stjórnvöldum hafa borist vegna ákvæða í lögum hér á landi sem talin eru brjóta í bága við ákvæði þessa sáttmála. Félmrh. er það stjórnvald sem
kemur fram fyrir Íslands hönd gagnvart Evrópuráðinu þegar um er að ræða framkvæmd þessa sáttmála. Og það verður að sjálfsögðu eftir því tekið hvernig félmrh. og hans flokksmenn taka afstöðu í þessu máli. Ég vil, með leyfi forseta, vitna í þessa skýrslu félmrh. þar sem segir eftirfarandi á bls. 37 um þetta mál:
,,Sérfræðinganefnd Evrópuráðsins er óvenju dómhörð þegar hún fjallar um ákvæði um bótarétt í lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð. Um þetta ákvæði segir að nefndin hafi enn fremur veitt því athygli að samkvæmt lögum nr. 64/1981 eigi eingöngu félagar í stéttarfélögum rétt á atvinnuleysisbótum. Það að svipta launamann rétti til fjárhagslegrar verndar ef hann er atvinnulaus sé óverjandi ráðstöfun sem hafi þann tilgang að neyða hann til að ganga í eða vera áfram félagi í stéttarfélagi. Með tilliti til þess hafi nefndin komist að þeirri niðurstöðu að lögin brjóti í bága við anda og bókstaf 5. gr. sáttmálans.``
Nefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að þessi ákvæði sem verið er að tala um brjóti í bága við bæði anda og bókstaf 5. gr. þessa sáttmála. Það er þess vegna ekkert að undra þó að hér sé flutt brtt. við þetta frv. sem gengur í sömu átt og þessi óvenju sterka athugasemd, óvenju harðorða athugasemd.
Þannig er að vísu, herra forseti, að þessi sérfræðinganefnd hefur gert fleiri athugasemdir við íslensk lög. Hún hefur til að mynda gert athugasemd við sjómannalög, 81. gr. sjómannalaga, og frá því segir á þessari sömu blaðsíðu skýrslu félmrh. til Alþingis. En hver voru viðbrögð ríkisstjórnarinnar við þeirri athugasemd? Þau voru að flytja frv. til laga á hinu háa Alþingi á þessum vetri um að breyta sjómannalögunum til samræmis við þá athugasemd, að fella niður það ákvæði í 81. gr. sjómannalaga sem talið var brjóta í bága við félagsmálasáttmála Evrópu með þeim rökstuðningi að komið hefði athugasemd erlendis frá, frá þessari sérfræðinganefnd, um að 81. gr. bryti í bága við félagsmálasáttmálann. Þá stóð ekki á viðbrögðunum. Þá stóð ekki á því að framfylgja ákvæðum sáttmálans. Og ég veit ekki betur en það frv. hafi farið í gegnum Ed. og sé í meðferð núna í Nd. þingsins, væntanlega í hv. samgn.
Ég nefni annað dæmi þar sem ríkisstjórnin hleypur strax til þegar berst athugasemd um framkvæmd Íslands á alþjóðlegum sáttmálum sem Ísland á aðild að. Við sem störfum í heilbr.- og trn. vitum um það frv. til breytinga á læknalögum sem legið hefur fyrir þinginu. Tilkoma þess hingað inn í þingið er vegna þess að eftirlitsnefnd með framkvæmd norræns sáttmála um gagnkvæma viðurkenningu starfsréttinda innan heilbrigðisstéttanna hefur gert athugasemd við framkvæmd Íslands á þessu ákvæði. Ég skal ekki fara nákvæmlega út í þau efnisatriði, enda liggja þau fyrir í frv., en það sem skiptir máli hér er það að um leið og slík athugasemd berst frá þessari eftirlitsnefnd með framkvæmd þessa norræna sáttmála, þá sér ríkisstjórnin sitt óvænna og leggur fyrir Alþingi frv. um að breyta lögum til þess að unnt sé að uppfylla þau ákvæði þessa sáttmála sem hin erlenda eftirlitsnefnd telur að við séum, sem ríki, brotleg við.
Í þessu tilfelli skortir heldur ekki á viðbrögð. Það vantar ekki að það sé hlaupið upp til handa og fóta að fá læknalögunum breytt í sambandi við þá athugasemd sem barst frá norrænu eftirlitsnefndinni.
Hvernig stendur þá á því að ríkisstjórnin er ekki sjálfri sér samkvæm og leggur til breytingar á lögunum um Atvinnuleysistryggingasjóð í samræmi við þær athugasemdir sem borist hafa varðandi þá löggjöf? Hvernig stendur á því? Hvernig stendur á því að hér er lögð fram skýrsla í nafni ríkisstjórnarinnar sem félmrh. er ábyrgur fyrir þar sem málið er lagt þannig upp að við blasir hér mjög alvarleg athugasemd en síðan er flutt stjfrv. þar sem ekki er tekið á þessu máli? Hvernig stendur á þessu ósamræmi?
Það er auðvitað fullkomlega hlálegt og verður ekki sérstaklega gæfulegt til afspurnar ef ráðherra þessa málaflokks og aðrir ráðherrar, til að mynda sá ráðherra sem flutt hefur brtt. vegna læknalaga út af þeirri athugasemd sem ég gat um áðan, styðja ekki þær brtt. sem 1. minni hl. flytur. Þær ganga einfaldlega út á það að afnema þessa mismunun þannig að allir þeir sem atvinnulausir verða, óháð aðild að verkalýðsfélagi, eigi rétt á atvinnuleysisbótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði, enda njóti þeir ekki slíkra réttinda annars staðar. Og ég spyr allt þetta félagshyggjufólk, sem svo kallar sig og stendur að þessari ríkisstjórn: Þurfa þeir einstaklingar sem verða atvinnulausir og ekki eru í stéttarfélögum eitthvað minna á bótum að halda þegar þannig ástand kemur upp en þeir sem eru í verkalýðsfélögum? Er það þannig að ef fólk er atvinnulaust fari þörf þess fyrir bætur eftir því hvort það er í einhverju tilteknu félagi? Er það þannig?
Nei, það er auðvitað ekki þannig. Og auðvitað eru þetta almenn réttindi í sjóði sem lagt er fé í bæði úr ríkissjóði og af sveitarfélögum, af skattfé alls almennings og ekki bara þeirra sem eru í verkalýðsfélögum. Auðvitað er það þannig. Og auðvitað er það fráleitt að binda slík réttindi við þá félagsaðild sem hér er til umræðu. Ég held satt að segja að þeir verkalýðsforingjar sem um þessi mál hugsa nú til dags hljóti að gera sér grein fyrir því að það eru breyttar aðstæður í þjóðfélaginu frá því sem var þegar þessum bótum var á komið og auðvitað allt gjörbreytt hér í samskiptum verkalýðsfélaga og vinnuveitenda annars vegar og þessara aðila við ríkisvaldið frá því sem var fyrir áratugum síðan. En ég gat þess áðan að kannski er ekki við því að búast, það er ekki hægt að gera þær kröfur til verkalýðsfélaganna eða Alþýðusambandsins að það sjálft flytji brtt. eða leggi til breytingar á þessu fyrirkomulagi. Það verður að koma héðan frá löggjafarsamkomunni, enda eru sum mál þess eðlis að Alþingi verður sjálft að taka af skarið. Ekki er endalaust og alltaf hægt að bíða eftir því að samtök utan þingsins gefi línu eða veiti samþykki sitt fyrir lagabreytingum sem þingið vill beita sér fyrir.
Ég þarf ekki, herra forseti, í þeirri tímaþröng sem hér er orðin í þingstörfum að hafa langt mál um þetta
umfram það sem orðið er. Ég vek athygli á því að í fylgiskjali með nál. 1. minni hl. er birt yfirlit sem er fengið úr greinargerð Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna til heilbr.- og trmrh. frá því í nóvember sl. þegar þessir aðilar voru að gera tillögur um breytingar á þeim lögum sem nú eru til meðferðar hér. Þar er rakið mjög ítarlega hvernig réttarstaða ófélagsbundinna launþega er í ýmsum öðrum málum. Og það er rakið hvernig ófélagsbundnir launþegar hafa með lögum frá Alþingi fengið rétt á við félagsbundna launþega eins og sjálfsagt er þegar um er að ræða almenn réttindi, veitt í skjóli ríkisvalds, opinber réttindi sem fjármögnuð eru með almannafé. Hér er til að
mynda vikið að lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests, nr. 19/1979, þau ná til allra, lögum nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, lögum um ríkisábyrgð á launum, lögum um orlof og fæðingarorlof o.s.frv. Auðvitað ná þessi lög ekki bara til þess hluta launþega sem félagsbundinn er í verkalýðsfélögum heldur líka til allra annarra sem eru í sömu stöðu og lögin gera ráð fyrir.
Þess vegna er það auðvitað gersamlega úrelt, ef það hefur nokkurn tíma átt rétt á sér, að undanskilja þá einstaklinga rétti til atvinnuleysisbóta sem ekki eru félagsbundnir í stéttarfélögum.
Reyndar er það nú þannig, virðulegi forseti, að mikill meiri hluti íslenskra launþega er félagsbundinn í verkalýðsfélögum og vill vera það og mundi vera það alveg óháð þessari breytingu. Þess vegna er það náttúrlega enn skrýtnara ef menn leggjast gegn þessari brtt. á þeirri forsendu að hún geti orðið til þess að fæla menn frá því að vera í verkalýðsfélögum. Þeir einstaklingar sem þessi breyting mundi í raun og veru hafa einhver praktísk áhrif fyrir eru ekkert mjög margir. Ófélagsbundnir launþegar á Íslandi eru ekkert mjög margir. En það skiptir engu máli hvað þeir eru margir. Það skiptir máli að afnema hérna grundvallarranglæti sem bundið er í lögum og sem brýtur í bága við sáttmála sem Ísland á aðild að að mati sérfræðinganefndar Evrópuráðsins. Það er það sem skiptir máli.
Ég ætla ekki að elta ólar við einhverjar skýringar sem gefnar eru í nál. meiri hl. þess efnis að það sé ekki nægilega stór meiri hluti í sérfræðinganefndinni sem er þessarar skoðunar, eða eitthvað því um líkt, eða það séu 7 á móti 6 eða eitthvað því um líkt. Það er náttúrlega aukaatriði í þessu. Aðalatriðið er það og það þarf enga útlendinga til þess að segja okkur að þessi ákvæði laganna, eins og þau eru núna, eru einfaldlega óréttlát. Og að mínum dómi eru þau brot á mannréttindum þess fólks sem þarna á hlut að máli. Ég hef rakið það hvers vegna ég tel að svo sé og það breytir engu þó að einhver hluti nefndarmanna í embættismannanefnd á vegum Evrópuráðsins, sem er önnur nefnd en þessi sérfræðinganefnd, sé á öðru máli. Sérfræðinganefndin hefur kveðið upp sinn úrskurð að könnuðu máli og jafnvel þó að hún hefði komist að annarri niðurstöðu væri samt rétt að breyta
þessu þó ekki væri nema vegna sjálfra okkar hér á Íslandi og þess réttar sem við viljum tryggja öllu launafólki í landinu eða a.m.k. hef ég staðið í þeirri meiningu að alþingismenn allir vilji tryggja launafólkinu í landinu öllu saman ákveðinn rétt og ákveðin lífskjör.
Ég skal ekki hafa þetta mál lengra, herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess eins og nú er orðið áliðið nætur. Hér er fundur í fyrramálið og hér er fundur annað kvöld. Brtt. 1. minni hl. ganga einfaldlega út á það að í stað orðanna ,,félagi í stéttarfélagi`` komi orðið: launamaður. Það er meginbreytingin að í stað félagsmanna í stéttarfélögum komi launamenn. Sú breyting kemur fram í 1. brtt. okkar og aðrar brtt. leiðir af þessari breytingu þannig að þær eru sjálffallnar ef fyrsta breytingin er ekki samþykkt að öðru leyti en því að síðasta brtt. varðar tilvísun til lagatexta og er þess vegna óhjákvæmilegt að samþykkja hana eins og fram kom í máli talsmanns meiri hl. nefndarmanna.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, herra forseti, en ég ítreka það að vissulega verður eftir því tekið hvernig ráðherrar, einkanlega hæstv. félmrh. og hæstv. heilbr.- og trmrh., verja atkvæði sínu í þessari atkvæðagreiðslu og þeirra samflokksmenn.