Atvinnuleysistryggingar
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Frsm. 1. minni hl. heilbr.- og trn. (Geir H. Haarde):
    Herra forseti. Út af síðustu orðum hæstv. félmrh., þá sagði ég nú ekki að þingið hefði haft hraðar hendur við að afgreiða málið. Ég sagði að ríkisstjórnin hefði haft hraðar hendur við að leggja hér mál fyrir Alþingi. Það er ekki búið að afgreiða það. Ég tók það sérstaklega fram að eftir því sem ég best veit er þetta mál enn þá til meðferðar í samgn. Nd. En það er nú önnur saga.
    Ég vek athygli á því að hæstv. ráðherra er því miður með ákveðna tegund af orðhengilshætti varðandi þennan félagsmálasáttmála Evrópu sem ráðherrann ber ábyrgð á fyrir Íslands hönd að framkvæmdur sé hérlendis. Það er alveg ljóst að borist hefur alvarleg athugasemd frá margumræddri sérfræðinganefnd ef eitthvað er að marka þá skýrslu sem ráðherra hefur lagt fram hér á Alþingi. Hver er tilgangurinn með því að leggja hér fram svona ítarlega skýrslu um þessi mál en gera svo í þingræðu, eins og nú var gert, lítið úr því sem þarna segir og draga fram einhverjar upplýsingar til þess að gera lítið úr þessari athugasemd? Átti ekkert að taka mark á þessari athugasemd? Því er hún þá hér í skýrslunni? Því er þetta svona ítarlega rakið hér án nokkurs fyrirvara? Það hlýtur að hafa verið ætlunin að vekja þingmenn til umhugsunar um þetta mál með því að fjalla svo ítarlega um það hér og draga svo sterkt fram hver þessi athugasemd var.
    Það er líka misskilningur eða líka tilraun til þess að drepa málinu á dreif, réttara sagt, að segja sem svo: Ja, það fæst úr þessu skorið þegar Ísland og Alþýðusamband Íslands hafa lagt fram sínar skýringar í embættismannanefnd Evrópuráðsins. Þá verður fjallað um þetta á nýjan leik og þá fæst úr þessu skorið og þá getum við séð til hvort ástæða er til þess að efna til einhverra viðræðna hér á Íslandi milli ASÍ og samtaka vinnuveitenda um að fá þessu breytt, þ.e. ef athugasemdin stendur óhögguð. Ég gat þess reyndar sérstaklega
áðan að mér finnst að við þyrftum ekki að leita leiðbeiningar utan lands frá í þessu máli. Þetta er óréttlætismál hvernig sem á það er litið. Það eru hins vegar viðbótarrök í þessu máli að við skulum staðin að því, að því er þessi sérfræðinganefnd kemst næst, að brjóta alþjóðlegan samning sem við höfum skuldbundið okkur að fara eftir. Það eru viðbótarrök í málinu. En við eigum auðvitað þegar af þeirri ástæðu að þetta er óréttlátt, eins og þetta er, og þetta er brot á mannréttindum að hafa þetta svona að gera hér breytingar á. Við eigum ekki að þurfa að bíða eftir að þessar nefndir á vegum Evrópuráðsins fjalli um málið. Við eigum ekki að gera svo lítið úr okkur að halda þar áfram uppi einhverjum vörnum fyrir þetta og búa til einhver rök og einhverjar varnir í máli sem allir vita innst inni að er ekki hægt að verja á grundvelli réttlætis og mannréttinda.
    Þær röksemdir Alþýðusambands Íslands að ef einhver maður sé atvinnulaus og vilji fá

atvinnuleysisbætur sé ekkert sem banni honum að ganga í stéttarfélag, þá geti hann bara gert svo vel og gengið í stéttarfélag, eru auðvitað ekki boðlegar og ég vænti þess að ríkisstjórn Íslands taki ekki svona röksemdir upp og geri að sínum á alþjóðavettvangi, svona furðuleg rök, að aldrei hafi staðið á því að menn gætu gengið í stéttarfélög og þess vegna hafi ekki staðið á því að menn gætu fengið atvinnuleysisbætur. Málið snýst ekkert um það. Málið snýst um það að ef menn, annaðhvort af fúsum og frjálsum vilja eða starfs síns vegna, hvorki vilja né geta verið í stéttarfélögum eigi þeir sama rétt og þeir sem eru í slíkum félögum. Það getur verið að ýmsir launamenn, framkvæmdastjórar og starfsmannastjórar í fyrirtækjum, eða starfsmenn vinnuveitendasamtaka til að mynda, sem ekki eiga aðild að verkalýðsfélögum geti hvorki né vilji starfsins vegna verið þar aðilar. Það eru auðvitað ekki boðlegar röksemdir að segja: Ef þið viljið fá atvinnuleysisbætur er enginn sem bannar ykkur að ganga í stéttarfélag. Það er auðvitað ekki boðlegt og ég held að eins og verkalýðshreyfingin hér á Íslandi er orðin nútímaleg og er orðin framsýn og framsækin og samvinnuþýð í ýmsum málum, eins og kom fram í ræðu forseta Alþýðusambandsins á Lækjartorgi í gær, þá sé ekkert sérstaklega erfitt mál eða flókið að ná a.m.k. þegjandi samkomulagi við þá verkalýðshreyfingu eða forustu um að breyta þessu. En ég ítreka að auðvitað getur enginn ætlast til þess að forusta um slíkt komi frá verkalýðshreyfingunni eða að verkalýðshreyfingin sjálf biðji um neitt slíkt.
    Í ljós hefur komið að það eru breyttir tímar innan verkalýðshreyfingarinnar. Hún er nú í forustu fyrir stærsta einkabanka á Íslandi og hefur þar með haslað sér völl á sviði sem áður hefur ekki verið talið sérstaklega vettvangur verkalýðshreyfingarinnar. Og vitanlega má hugsa sér það að verkalýðshreyfingin verði í framtíðinni stærri aðili að atvinnurekstri beinlínis með því að eiga hluti í hinum ýmsu fyrirtækjum í landinu og auðvitað væri það þróun sem væri æskileg ef hún næði fram að ganga með fúsum og frjálsum samningum aðila og án íhlutunar eða valdbeitingar af hálfu löggjafans, ef verkalýðshreyfingin haslaði sér völl í atvinnulífinu með því að kaupa á markaði hlutabréf í hinum ýmsu atvinnufyrirtækjum þessa lands eða ef til að mynda lífeyrissjóðir
verkalýðshreyfingarinnar gerðu það. Þetta undirstrikar auðvitað bara það, herra forseti, að það eru breyttir tímar í þessum efnum og auðvitað er það ekkert innlegg í málið að þegar atvinnuleysistryggingar voru fyrst teknar upp hér á Íslandi fyrir forustu verkalýðshreyfingarinnar skuli lagaákvæðið hafa verið með þessum hætti.
    Verkefni löggjafarsamkomunnar hér á Alþingi er að setja lög og breyta eldri lögum, og auðvitað er ekki hægt að flytja það hér sem rök eða boðskap að lögum megi ekki breyta vegna þess að þau séu orðin svo gömul eða tiltekin ákvæði hafi alltaf verið svona í lögum. Hæstv. forsrh. hefur lagt hér fram mikinn lagabálk um brottfall laga og lagaákvæða nokkur

hundruð ár aftur í tímann og það er auðvitað engin frágangssök að breyta ákvæði sem þessu þó svo að menn hafi einhvern tíma verið sammála um að það ætti að vera eins og það er núna. Ég hygg að innst inni og sennilega allan tímann hafi menn vitað og verið þeirrar skoðunar að atvinnuleysisbætur og þörfin fyrir þær er ekki bundin því hvort menn eru aðilar í þessu félaginu eða hinu. Maður sem verður atvinnulaus þarf jafnmikið á bótum að halda hvort sem hann er innan eða utan verkalýðsfélags og þetta er ranglátt eins og ég sagði áðan, ekki síst vegna þess að meginhluti þess fjár sem hér er um að ræða hefur í gegnum tíðina komið
frá ríki og sveitarfélögum. Mér skilst reyndar að sveitarfélög leggi ekki lengur fram fé í sjóðinn en fjármagnið sem nú rennur í sjóðinn kemur frá ríkisvaldinu og frá vinnuveitendum og það er ranglátt að undanskilja einhvern tiltekinn hóp launamanna, einhvern tiltekinn lítinn hóp launþega sem af einhverjum ástæðum er ekki í stéttarfélagi, undanskilja þennan hóp því að mega njóta þessara almennu mannréttinda sem hér er um að tefla.