Frumvarp um yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Ingi Björn Albertsson :
    Hæstv. forseti. Hún var kostuleg ræðan sem hv. síðasti ræðumaður flutti og hvatti til þess að málfrelsi minni hlutans yrði skert til hagsbóta fyrir meiri hlutann. Hann lýsti því yfir að stjórnarliðar ættu ýmislegt ósagt í þessu máli. Við í stjórnarandstöðunni höfum nú einmitt verið að hvetja stjórnarliða, m.a. þann þingmann sem hér talaði síðastur, til að tjá sig í þessu máli en gengið mjög erfiðlega. Ég held að ég muni mælendaskrána í þessu máli nokkurn veginn. Á henni eru þrír eða fjórir stjórnarandstæðingar, ég meðal annars. Ég hygg að við séum allir tilbúnir að færa okkur neðar á skrána til að hleypa stjórnarliðum að, svo lengi höfum við beðið eftir að fá að heyra í þeim. M.a. höfum við beðið alllengi eftir að fá að heyra í sjálfum hæstv. umhverfisráðherra. Það er búið að ákalla hann í umræðu eftir umræðu og ræðu eftir ræðu, en hann fæst ómögulega til þess að tjá sig. Svipað skeði uppi í Ed. rétt áðan þegar verið var að vitna í yfirlýsingar hans þar um þingslit. Ég lýsi því yfir að ég er fyrir mitt leyti tilbúinn að færa mig aftar á mælendaskrá til þess að fá þá að heyra skoðanir stjórnarliða. Ég hygg hins vegar að þeir séu ekki tilbúnir að koma hér upp en ég hvet þá til þess að standa undir þeim orðum sem hv. þm. Ásgeir Hannes Eiríksson hafði hér rétt áðan. Það mun koma í ljós þegar bankað verður í borðið hér á eftir ef forseti verður ekki við því að slíta þessum fundi nú.
    Undir þá beiðni vil ég taka og benda á að af þremur stjórnarandstöðuflokkum hafa tveir lagt fram þessa beiðni. Ég hygg að forseta beri að endurskoða hug sinn í því efni.
    Varðandi það sem hæstv. forseti Sþ. sagði um næturfund og að þingmenn hafi ekki þurft að eyða hér neinni nótt fram að þessu, þá finnst mér það bara engin rök í þessu máli. Meginrökin eru þeir dagar sem eru fram undan. Ef hæstv. forseti Sþ. vill knýja umræðuna hér í gegn í nótt, þá stendur hún fram á morgun og fram að nefndarfundum. Þá fer ég þess á leit við hæstv. forseta Sþ. að eldhúsdagsumræðu verði frestað. Ég verð að segja það fyrir hönd míns þingflokks, sem telur nú ekki nema tvo þingmenn, að þó við fáum ekki svefn þá verðum við að fá tíma til að undirbúa okkur undir þá umræðu og sá tími hefur ekki gefist enn. Ég legg formlega fram þá beiðni að eldhúsdagsumræðu verði frestað.
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins benda á það í lokin að til eru lög sem eru kölluð vökulög. Þau hefur löggjafarsamkunda Íslendinga nú brotið.