Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Ég vil einnig upplýsa að mér er kunnugt um að fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur verið boðuð til fundar klukkan eitt, eftir sex mínútur eða svo, tjáði mér hv. nefndarformaður, Páll Pétursson, að hann mundi gera fyrir örskömmu síðan og veit ég ekki betur en sú ákvörðun standi nema henni hafi verið breytt. Það kann að vera.