Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Ég sé ástæðu til að þakka Þorsteini Pálssyni fyrir það hól sem fólst í ræðu hans hér áðan um núverandi stjórnarsamstarf. Hann endurtók gamla plötu um sundurlyndi í stjórnarsamstarfinu en þessi sundurlynda ríkisstjórn hefur lyft hverju grettistakinu á fætur öðru. Þessi sundurlynda ríkisstjórn hefur fengið hvert stórmálið eftir annað afgreitt og mörg eru á leiðinni í gegnum Alþingi. Ég bendi á að þessi sundurlynda ríkisstjórn er að fá markaða hér stefnu til lengri tíma í stjórn fiskveiða og hún er að fá samþykkt hér á Alþingi eitthvert mesta framfaramál á þessu sviði, hagræðingarsjóð á sviði fiskveiða, sem ég leyfi mér að fullyrða að eigi eftir að breyta gersamlega rekstrarstöðunni í þessum mikilvæga atvinnuvegi. Og þessari sundurlyndu ríkisstjórn hefur, þrátt fyrir að aðrir hafi reynt í mörg, mörg ár, tekist að koma á fót umhverfisráðuneyti. Að vísu hefur Sjálfstfl., þessum stærsta flokki, tekist að koma í veg fyrir að sjálfsögð verkefni verði flutt til þessa umhverfisráðuneytis. Vekur það satt að segja nokkra undrun á sama tíma og við sjáum myndir í sjónvarpi af óhreinindum í fjörum og að gróður landsins blæs á sjó út. Þó hef ég ekki nefnt langsamlega stærsta afrek þessarar sundurlyndu ríkisstjórnar, að reisa íslenskt efnahagslíf úr þeirri rúst sem þar var þegar Þorsteinn Pálsson skildi við í september 1988.
    Það er hárrétt að það eru gífurlega miklar breytingar í heiminum og aldrei hafa þær verið svo miklar áður. Múrinn hrynur, girðingar eru fjarlægðar og fólk tekst í hendur yfir landamæri og kemst að því að það er í raun og veru hvert öðru líkt. Tortryggnin hverfur, traust skapast og kalda stríðið er horfið. Ekki minntist hv. þm. á það. Og sannarlega hafa gífurlega miklar breytingar gerst, jafnvel í okkar næsta umhverfi í Evrópu. Bandalög sem voru mynduð fyrir nokkrum árum um frjálsa verslun springa nú út eins og blóm að
vori. Efnahagsbandalag Evrópu stefnir óðfluga í það að verða öflugasta efnahagsheild sem til er í heiminum og flestir spá því að þar myndist stjórnmálasamtök sem munu nálgast Bandaríki Norður-Ameríku. Svo sannarlega höfum við Íslendingar tengst þessari þróun og við erum raunar í miðri hringiðunni. Við getum ekki dregið okkur út úr þessari þróun, hvort sem okkur líkar það betur eða verr.
    Okkar viðskipti við Efnahagsbandalagið hafa aukist hröðum skrefum. Þangað flytjum við nú um það bil 60% af okkar útflutningi og lífskjör okkar eru í stöðugt ríkara mæli háð útflutningi og innflutningi. Segja má að um 40% af okkar lífskjörum séu þangað sótt. Þetta nefni ég til að undirstrika að vitanlega þurfum við að taka ábyrgan þátt í þeirri þróun sem þarna er að gerast og gæta okkar hagsmuna. Ég fagna því að íslenska þjóðin virðist sammála um það að full aðild að Evrópubandalaginu komi ekki til greina, enda yrðum við þá ekkert annað en útkjálki, eins konar

annexía, af þessum bandaríkjum Evrópu. Hins vegar vil ég legja áherslu á það að til þess að við getum tekið þátt í þeim viðræðum og samningum sem þarna eru fram undan verður íslenskt atvinnulíf að vera öflugt. Það var það ekki haustið 1988. Þá lýstu atvinnurekendur því yfir, m.a. fjölmargir fylgismenn Sjálfstfl., að íslensk fiskvinnsla mundi ekki opna á ný eftir þau áramót. Nú um þessi áramót lýstu þessir sömu menn því yfir að nú væri loksins borð fyrir báru til þess að geta gengið til heilbrigðra og skynsamlegra samninga við verkalýðshreyfinguna. Þetta er mikil breyting, enda eru öll merki sem staðfesta hana.
    Sú ríkisstjórn sem var mynduð í september 1988 hafnaði gengisfellingarkollsteypum Sjálfstfl. Hún ákvað að taka höndum saman við þjóðina og freista þess að vinna okkur Íslendinga út úr þeim erfiðleikum sem þá voru orðnir. Það hefur tekist. Gengið hefur verið leiðrétt svo það má teljast nokkurn veginn rétt nú. Og á sama tíma, sem er tiltölulega óvenjulegt, hefur tekist að koma í veg fyrir að verðbólgualda skapaðist. Og það sem er nú enn þá mikilvægara er að á þessum tíma tókst að snúa við þeim vöruskiptajöfnuði sem hafði verið okkur afar óhagstæður og vöruskiptaafgangur varð hvorki meira né minna en um 8 milljarðar kr. Staða peningakerfisins batnaði. Innlán urðu meiri en útlán og samkvæmt mati Seðlabankans sjálfs lækkuðu vextir, raunvextir, að meðaltali úr um það bil 10% niður fyrir 8%. Þeir hefðu mátt lækka meira. Ég er algerlega ósammála því sem kom fram hjá hv. þm. Þorsteini Pálssyni áðan að of lágir vextir 1986 og 1987 hafi ráðið úrslitum í þeirri verðbólguöldu sem þá hófst. Þvert á móti hafa vextirnir legið með ofurþunga, allt of miklum þunga, á skuldugum íslenskum atvinnuvegum.
    Þannig er ástandið nú að nálgast það að vera það heilbrigðasta sem við höfum búið við og svo sannarlega erum við nú í þeirri stöðu að geta gengið með höfuðið upp til þeirra viðræðna sem eru fram undan við Efnahagsbandalag Evrópu. Þetta er kannski það mikilvægasta sem þessi sundurlynda ríkisstjórn hefur áorkað á sínum tiltölulega stutta ferli.
    Að sjálfsögðu er björninn ekki unninn þegar til lengri tíma er litið. Vitanlega verður að gæta þess nú mjög vandlega að ekki hefjist ný
verðbólgualda. Á vegum þessarar ríkisstjórnar er fylgst með því frá degi til dags, ef ég má orða það svo. Ég hef fengið þær fréttir í dag að allt bendi til þess að verðbólguhækkunin nú í maí verði innan þeirra marka sem verkalýðshreyfingin hefur sett sem rautt strik. Þar er út af fyrir sig miklum áfanga náð og allt bendir til þess að á þessu ári verði verðbólga frá upphafi til loka ársins um 7% og fari lækkandi þegar líður á árið. Það boðar svo sannarlega nýja tíma í þessu þjóðfélagi.
    Einnig er fylgst vandlega með því að ekki hefjist sú þensla sem varð okkur svo hættuleg á árunum 1986--1988. Þar eru vissulega nokkur merki sem ber að varast, en þau ánægjulegu tíðindi eru að gerast að atvinnuleysi er hverfandi og bendir margt til þess að

nú sé að skapast hér nokkur umframeftirspurn eftir vinnuafli. Ég sagði: Þau ánægjulegu tíðindi að atvinnuleysið er að hverfa. En vitanlega þurfum við þá að gæta okkur á því að fjárfesting og innflutningur vaxi ekki. Ég vil taka undir það með forustumönnum í sjávarútvegi að gengishækkun í þessari stöðu er ekki rétt. Gengishækkun kemur mjög ójafnt við atvinnuvegi landsins. Ég get hins vegar alls ekki tekið undir það að vaxtahækkun sé rétta leiðin til að sporna gegn hugsanlegri þenslu. Vaxtahækkun mundi hvíla sem ofurþungi enn á ný á skuldugum íslenskum atvinnuvegum. Því hef ég og við í ríkisstjórninni lagt áherslu á að Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins verði afgreiddur frá Alþingi. Vera má að stjórnarandstöðunni takist að koma í veg fyrir það. Þó er það nú von mín að svo verði ekki. En umfram allt vil ég leggja áherslu á það að atvinnurekendur sjálfir sem búa við betri hag verða að gæta þess að ráðstafa þeim peningum ekki til óskynsamlegra fjárfestinga eða eyðslu, ef ég má kalla það svo. Þetta fjármagn á að nota til þess að lækka skuldir atvinnufyrirtækjanna og íslenska þjóðarbúsins í heild. Þá erum við svo sannarlega á réttum vegi. Og ég ber það traust til íslensks atvinnulífs að svo muni sannarlega verða.
    Það sem er hvað alvarlegast í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar sem hv. þm. minntist á hér áðan er spá þeirrar stofnunar um lítinn hagvöxt hér á landi á næstu árum. Það er mjög umhugsunarvert. Þessi spá er í fullu samræmi við það sem Þjóðhagsstofnun hefur sjálf spáð. Þess vegna er aldrei nauðsynlegra en nú að rennt verði fleiri stoðum undir íslenskt atvinnulíf. Jú, þetta hefur oft verið sagt, en það er sannara nú en nokkru sinni fyrr. Það er þess vegna sem ríkisstjórnin leggur áherslu á að auka nokkuð við orkufrekan iðnað í landinu og nýta ónotaðar orkulindir í því skyni. Það er enn eitt sem þessi sundurlynda ríkisstjórn er að knýja í gegn. En ég hef þó ekki síður trú á því að aðrir vaxtarmöguleikar séu miklir og jafnvel enn þá mikilvægari. Ég hef óbilandi trú á því að við getum stórlega aukið hér þjónustu, t.d. við ferðamenn. Og ég hef mesta trú á því að í þeirri þekkingu sem unga fólkið í þessu landi er að afla sér á fjölmörgum nýjum sviðum, hátækni og vísinda svo að eitthvað sé nefnt, muni þegar til lengri tíma er litið reynast þessari þjóð happadrýgst. En allt mun það verða til einskis ef við glötum því sem hefur áunnist.
    Þessi sundurleita ríkisstjórn mun sitja út kjörtímabilið og þessi ríkisstjórn mun ekki glata neinu af því sem áunnist hefur með hörðum höndum, ekki síst fólksins sjálfs, þann tíma sem hún hefur setið.