Grunnskóli
Föstudaginn 04. maí 1990


     Frsm. menntmn. (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1205 frá hv. menntmn. um frv. til laga um breytingar á lögum um grunnskóla, nr. 63/1974, með síðari breytingum.
    Nál. hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. sem er flutt af menntmn. neðri deildar. Lagt er til að frv. verði samþykkt óbreytt.
    Guðrún Agnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
    Undir nál. rita Jón Helgason, Halldór Blöndal, Salome Þorkelsdóttir, Skúli Alexandersson, Sveinn G. Hálfdánarson og Valgerður Sverrisdóttir.