Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Föstudaginn 04. maí 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1213 um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 29 29. apríl 1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
    Í nál. segir svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra og Snorra Olsen og Guðmund Björnsson frá fjmrn.
    Lagt er til að frv. verði samþykkt óbreytt.``
    Undir þetta rita allir nefndarmenn í fjh.- og viðskn.
    Í þessu frv. er verið að fella ýmsar stéttir manna sem vinna hjá ríkisfyrirtækjum undir Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna. Raunar voru þessir starfsmenn í Lífeyrissjóði opinberra starfsmanna, en samkvæmt úrskurði sjóðstjórnarinnar 1987 á grundvelli álits prófessors Arnljóts Björnssonar töldust þeir ekki eiga beina aðild að sjóðnum. Þar á ég við starfsmenn Sinfóníuhljómsveitarinnar, Landsvirkjunar og fleiri aðila. Með lögum í fyrra var ákveðið að starfsmenn Sinfóníuhljómsveitarinnar féllu undir Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna en nú er lagt til að starfsmenn allra þessara stofnana fái heimild til að sækja um aðild að Lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.
    Það er lagt til að frv. verði samþykkt óbreytt.