Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1214 frá fjh.- og viðskn., um frv. til laga um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða.
Í nál. segir svo:
,,Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk til viðræðna Guðmund Björnsson frá fjmrn. Einnig barst umsögn frá Sambandi almennra lífeyrissjóða.
Nefndin leggur til að tvær breytingar verði gerðar á frv. Í fyrsta lagi er gerð tillaga um tæknilega breytingu á 6. mgr. 3. gr. frv. Í öðru lagi er lagt til að skoðunarmenn reikninga tilkynni ekki einungis stjórn lífeyrissjóðs og bankaeftirliti ef vart verður verulegra ágalla í rekstri sjóðsins heldur einnig fjmrn.
Lagt er til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.``
Undir þetta rita allir nefndarmenn.
Þetta frv. lagði hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson fram í deildinni. Umsagnirnar sem bárust um frv. voru mjög jákvæðar og töldu menn mikla nauðsyn á að samþykkja frv.
Þær breytingar sem gerðar eru eru, eins og segir í nál., frekar tæknilegar en efnislegar. Þó er gerð tillaga um eina breytingu frá því sem segir í frv. sem skiptir nokkru máli fyrir fjármálastjórn. Það er seinni liður brtt. um það að þar sem segir að verði veruleg vanræksla á bókhaldi hjá lífeyrissjóði skuli tilkynna það stjórn sjóðsins og Seðlabanka. Þar bætist við að einnig skuli tilkynna fjmrn. um það. Þarna er aðeins um tilkynningu að ræða en með þessu er ekki verið að gefa fjmrn. heimildir til þess að sýsla í málefnum
lífeyrissjóða. Hins vegar er málum þannig háttað að fjmrn. hefur með þessi mál að gera og gefur út reglugerðir fyrir lífeyrissjóði og því nauðsynlegt að fjmrn. hafi öll gögn í höndum um starfsemi lífeyrissjóða. Ég legg því til, og vísa þar í nál. að mál þetta hljóti afgreiðslu á þessu þingi.