Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég þakka fjh.- og viðskn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu á frv. Ég get fallist á og tekið undir þau sjónarmið sem komu fram í sambandi við þær brtt. sem nefndin gerir við frv. Þær eru eðlilegar í ljósi þess sem kom fram í ræðu frsm. og einnig með tilliti til þess hvernig þetta hefur verið framkvæmt.
Það er rétt sem hv. þm. sagði að fjmrn. hefur verið sá aðili sem hefur annast útgáfu reglugerða fyrir lífeyrissjóðina þannig að það er auðvitað eðlilegt að fjmrn. komi inn í þessi mál með þeim hætti sem hv. þm. Guðmundur Ágústsson, frsm. nefndarinnar, skýrði hér áðan.
Og ég vil endurtaka það sem ég sagði í framsöguræðu með frv. á sínum tíma að þetta er þörf lagasetning. Með þessu kemst meira samræmi og regla á uppfærslu og útgáfu ársreikninga lífeyrissjóða, en eins og hv. þm. vita eru lífeyrissjóðir orðnir mjög stórir aðilar í íslensku peningakerfi fyrir utan það hvað lífeyrissjóðirnir eru veigamikill þáttur í nútímatryggingakerfi. Ég endurtek þakkir mínar til nefndarinnar fyrir skjóta og góða afgreiðslu.