Landsvirkjun
Föstudaginn 04. maí 1990


     Skúli Alexandersson:
    Herra forseti. Ég get tekið undir flest það sem hv. 4. þm. Reykn. Karl Steinar Guðnason sagði hér um verkalýðshreyfinguna og baráttu hennar og hverju verkalýðshreyfingin hefði komið til leiðar. Vitaskuld væri þjóðfélag okkar allt öðruvísi og þá ábyggilega mismunur og staða ýmissa hópa í þjóðfélaginu breytilegri en raun ber vitni um ef ekki hefði komið til að verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir jöfnun lífskjara. Þó ég hafi nefnt það hér að þörf væri á því að verkalýðshreyfingin beitti sér öfluglega fyrir samræmingu á orkukostnaði var ég þar ekki með neina sneið til verkalýðshreyfingarinnar nema síður sé. Ég var aðeins að hvetja verkalýðshreyfinguna enn til dáða í þessum sem og öðrum jafnréttisbaráttumálum verkalýðshreyfingarinnar en vitaskuld verða alltaf uppi raddir um að betur hefði mátt gera en gert hefur verið.