Atvinnuleysistryggingar
Föstudaginn 04. maí 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Stefán Guðmundsson):
    Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. heilbr.- og trn. á þskj. 1229 um frv. til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 64/1981, með síðari breytingum. Þar segir:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess án breytinga.
    Guðrún Agnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
    Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Valgerður Sverrisdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Karl Steinar Guðnason, Guðmundur H. Garðarsson með fyrirvara og Salome Þorkelsdóttir ritar einnig undir nál. með fyrirvara.