Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég ætla aðeins að segja hér örfá orð við 1. umr. þessa máls. Ég á sæti í allshn. sem fær málið til umfjöllunar og fæ tækifæri til að fjalla efnislega um frv. þegar nefndin tekur til starfa um málið. En ég get ekki annað en sagt að mér finnst það afar dapurlegt að eitt mikilvægasta mál þingsins, umhverfismálin, og jafnframt stærsta mál sem við okkur blasir hér á landi um þessar mundir og reyndar um heimsbyggð alla, skuli hafa fengið þá afgreiðslu sem raun ber vitni hér á hv. Alþingi.
Hv. 3. þm. Vestf. talaði hér áðan og lýsti því í ræðu sinni hvernig ríkisstjórnin hefur staðið að þessu máli. Ég vek athygli á því að það var einn af hv. stjórnarþm. sem talaði, sem benti á kaupmennskuna og braskaraháttinn í þessu máli innan stjórnarflokkanna. Kannski er ástæða til að benda á þetta vegna þess að stjórnarliðar og ekki síst þeir sem þetta mál varðar hafa verið iðnir við að halda því á lofti að Sjálfstfl. væri á móti þessu máli, ekki á málefnalegum grunni heldur af persónulegri óvild í garð þess hæstv. ráðherra sem hefur nú fengið þetta ráðuneyti án verkefna eins og okkur er væntanlega öllum minnisstætt og gerðist í febrúar sl.
Mér finnst ástæða til að minna á og ítreka það að Sjálfstfl. flutti frv. í upphafi þessa þings, síðastliðið haust, um samræmda stjórn umhverfismála og líka er ástæða til að minna á að það frv. hefur ekki fengið umfjöllun eða afgreiðslu en frv. var einmitt samið með tilliti til þess að hægt væri að ná sátt og breiðri samstöðu um þetta mál, ekki aðeins innan þings heldur, og ekki síður, úti í þjóðfélaginu hjá þeim aðilum sem með þessi mál fara. Okkur ætti öllum einmitt að vera orðið kunnugt að það er hreint ekki sátt meðal þeirra aðila um hvernig að þessu máli er staðið. Við vitum öll að umhverfismálin heyra undir a.m.k. átta ráðuneyti og það hefði verið stórmerkur og góður áfangi að byrja á því að samræma þessi mál undir einni yfirstjórn og síðan hefði mátt bíða og sjá hver reynslan hefði orðið af því.
Það kom fram hjá hv. 3. þm. Vestf. hversu mikinn kostnað þetta hefði í för með sér. Það er sorglegt að þurfa að segja það að þetta mikilvæga mál er komið í eitt allsherjarrugl. Sí og æ hafa komið upp nýir fletir í þessu máli. Það er engan veginn ljóst með hvaða hætti fyrirhugaðar tilfærslur leiða til góðs þar sem ekki er ljóst hvernig málið snýr gagnvart mörgum þeim aðilum sem eiga nú að flytja starfsemi sína og verkefni úr hinum ýmsu ráðuneytum yfir í þetta nýja umhverfisráðuneyti.
Ég gæti, hæstv. forseti, farið út í það að minna á allar þær athugasemdir sem komu frá hinum ýmsu umsagnaraðilum. Ég minni á að í nál. minni hl. allshn. sem kom fram við 2. umr. í Nd. eru ein 13 atriði talin upp og fleiri hafa bæst við síðan. Ég ætla að sleppa því að fara út í þau a.m.k. hér við 1. umr. Það gefst þá alltaf tækifæri á seinni stigum málsins en mér þótti rétt að koma hér aðeins upp og vekja athygli á því að ýmsir aðrir en Sjálfstfl. hafa
efasemdir um þetta mál, efasemdir um að hæstv. ríkisstjórn hafi verið með málefnin í huga þegar ákveðið var að leggja fram þetta frv. og setja á stofn umhverfisráðuneyti. Hv. 3. þm. Vestf. benti á að það hefðu legið aðrar ástæður að baki og notaði orðin ,,kaupmennska`` og ,,brask`` í þeim efnum.