Karvel Pálmason:
Virðulegi forseti. Hæstv. forsrh. sagði hér áðan að þetta væri eitt mikilvægasta mál sem hann hefði flutt hér á Alþingi. ( GHG: Tekið þátt í að flytja.) Eða tekið þátt í að flytja. Efnislega held ég að þetta sé nú rétt eftir haft. Svo kann vel að vera að hafi verið í upphafi. En hvað stendur eftir af þessu nú? ( Forsrh.: Svo að segja allt.) Nær því allt? Ég hef að vísu ekki frekar en aðrir fengið þingskjölin. Það er búið að fella í burtu svo og svo margar greinar úr því frv. sem hæstv. forsrh. bar fram. ( Forsrh.: Tvær greinar.) ( EgJ: Fresta.) Fresta líka. ( Forsrh.: Til 1. jan.) Ja, til 1. jan. Mér þykir nú hæstv. forsrh. orðinn gamansamur í tali. Staðreyndin er auðvitað þessi. Ég skal ekkert dæma um það hversu gott frv. var þegar hæstv. forsrh. lagði það fram. En það er allt annað frv. sem menn eru núna að tala um en þá. Það er allt annað. Af hverju hefur þessi umræða staðið í allan vetur? Út af engu? Ekki neinu? ( Gripið fram í: Góð spurning.) Ja, ég spyr. Af hverju? Ef málið er núna jafngott og það var þegar það var lagt fram, strax í upphafi? ( EgJ: Það er betra núna.) Það er auðvitað ekkert sama mál sem hér er verið að ræða um og þó að hæstv. forsrh. sé góður í blekkingaleiknum nær þetta mál ekki fram að ganga, a.m.k. ekki eins og það var hugsað. Þetta er allt annað mál en var flutt í vetur, allt annað.
Hæstv. ráðherra sagði: Ég hefði helst viljað fara með þetta ráðuneyti. --- Ég efast mjög um, hæstv. forsrh., að þú vildir fara með þetta ráðuneyti í þeim umbúnaði sem það er núna fyrir Alþingi. Svo kann að vera að í framtíðinni sé hægt að gera þetta þannig úr garði að það sé mönnum sæmandi með það að fara. Svo kann að vera, að öðru leyti en að hégómagirnd snýr. En í þessu formi, eins og málið er núna, held ég að ekki sé til hróss fyrir einn eða neinn að fara með þetta mál.
Og svo koma hér upp menn sem nánast halda því fram að ekkert hafi verið verslað með þetta mál. Ég sé að hæstv. umhvrh. er heldur upplitsdjarfari nú en hann var hér í gær undir umræðunum um kvótann, og það má kannski segja í þessu efni, eins og oft áður, að litlu verður Vöggur feginn ef þetta nægir. Það er auðvitað ekkert vafamál fyrir alla þá sem vilja sjá að hér hefur verið verslað annars vegar með kvótann og hins vegar með umhvrn., verksvið þess. Borgfl. hefur verið keyptur upp með húð og hári að því er varðaði kvótann vegna þess að hann þurfti að fá eitthvað, eitthvað lítið, vegna umhverfismálanna þannig að þeir stæðu ekki uppi gjörsamlega slyppir og snauðir frammi fyrir þjóðinni sem þeir að verulegu leyti gera nú. Og svo kemur hæstv. umhvrh. hér upp í stólinn og segir að menn séu hér að gera að umræðuefni, og í háðstón, hrossakaup í stjórnmálum. Hvað ætli það hafi verið oft, hæstv. umhvrh., sem af þinni hálfu var rokið upp, trekk í trekk, þegar fyrri ríkisstjórnir sátu, og gerð að umræðuefni hrossakaup, hrossakaup milli þessara og hinna aðilanna? Ætli hæstv. ráðherra sé búinn að gleyma þessu eða á það
að vera svo í íslenskum stjórnmálum að menn tali bara eins og þeim hentar hverju sinni hvað sem sannleikanum líður? Ég held að hv. þingmenn, a.m.k. úr Borgfl., ættu að fara sér varlega í þeim efnum, að tala með þessum hætti, eftir þá útreið sem þeir hafa sjálfir fengið og skapað sér þann stutta tíma sem þeir hafa setið hér á Alþingi og verið í stjórnmálum. Það hefur enginn flokkur, það ég best veit, stundað jafnmikla kaupmennsku, hrossakaup, og borgaraflokksþingmenn hafa gert frá upphafi. Og það er ekki einu sinni svo að þessir hv. þm. fáist til þess að ræða þetta. Þeir sitja bara og lúta höfði í anda. Ekki er nú reisnin mikil.
Hv. þm. Karl Steinar sagði hér áðan að vissulega væri mikils virði að geta skapað hér umhverfismálaráðuneyti sem gerði gagn. Ég tek alveg undir það. En þetta sem hér er verið að tala um skapar lítið sem ekkert gagn, ekkert nema hégómann, ef menn vilja hafa hann að leiðarljósi. En ég vil minna hv. þm. Karl Steinar Guðnason á það að bætt lífskjarabarátta er líka mikils virði, að bæta lífskjörin, jafna þau milli þegnanna. Hún er ekki síður mikils virði en það að skapa umhverfismálaráðuneyti, ég tala nú ekki um það sem hér er verið að ræða um, sem er nánast ekki neitt. Og ég er alveg viss um að hæstv. umhvrh. segir núna eftir þessar umræður:
Er til starfa fótinn fer
fjandi er þjóðin heppin.
Af valdsviðinu ekkert er
eftir nema jeppinn.