Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Málin ber svo brátt að hér í þinginu þessa dagana, og þarf nú ekki að gefa nánari skýringu á ástæðunum fyrir því, að ég hef ekki haft tíma eða tækifæri til þess að ná í gögn sem tilheyra þessari brtt. En við fengum, þingmenn Reykjaneskjördæmis, bréf frá bæjarstjórn Hafnarfjarðar þar sem þess var eindregið farið á leit að Hafnfirðingar sætu við sama borð og Reykvíkingar hvað varðar þetta ákvæði í frv. um heilbrigðisþjónustu. En frv. hafði verið afgreitt frá hv. Ed. til Nd. þegar okkur barst þetta bréf og því höfðum við sem flytjum þessa brtt. ekki tækifæri til þess að flytja hana meðan málið var hér til afgreiðslu í deildinni og þess vegna er hún flutt nú.
Ég vildi aðeins láta þetta koma fram. Mér þykir mjög miður að heyra afstöðu hæstv. heilbrrh. til þessa máls en ég vænti þess jafnframt að hv. þingdeildarmenn vilji taka þessa ósk Hafnfirðinga til greina.