Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð um það frv. sem nú hefur verið afgreitt frá nefnd með brtt. sem ég tel að augljóslega sé eðlileg. Ég kemst hins vegar ekki hjá því að vekja athygli á því að hér er á ferðinni mál sem íslensk stjórnvöld, hæstv. ríkisstjórn hefur talið nauðsynlegt að taka upp á Alþingi, og hér er flutt frv. um breytingu á sjómannalögum, vegna þess að Ísland hefur fullgilt alþjóðasamþykktir en virðist ekki fara að þeim samþykktum, að mati erlendra sérfræðinga. Það er athygli vert og það er afnám nauðungarvinnu sem vitnað er til.
Ég kemst ekki hjá því, hæstv. forseti, í þessu sambandi að rifja upp umræður sem áttu sér stað hér í gær í sambandi við frv. um atvinnuleysistryggingar þar sem stóð nánast nákvæmlega eins á. Þar var um það að ræða að athugasemdir höfðu borist frá erlendum stofnunum sem við erum aðilar að og vegna samþykkta sem við höfum skrifað undir, að þar brytum við ákvæði slíkrar samþykktar. Þess vegna var farið fram á það, og m.a. kom það fram í skýrslu hæstv. félmrh., að ástæða væri til þess að breyta viðkomandi lögum. Þrátt fyrir allt þetta sá stjórnarmeirihlutinn ekki ástæðu til að verða við þessari beiðni sem kom fram hjá minni hl. félmn. og lét sig hafa það að fara gegn beiðni sem komin var frá sérfræðinganefnd Evrópuráðsins vegna þess máls. Ég tel, hæstv. forseti, nauðsynlegt að benda á að í sumum tilvikum virðist hæstv. ríkisstjórn vera tilbúin til þess að fara að slíkum fyrirmælum, en í öðrum tilvikum ekki.
Það væri hægt að efna hér til langrar ræðu um þetta mál. Ég sé samt ekki ástæðu til þess en tel að það sé fullkomlega ljóst að það virðist skipta máli hver í hlut á í þessu sambandi.