Heilbrigðisþjónusta
Föstudaginn 04. maí 1990


     Geir Gunnarsson:
    Herra forseti. Eftir að ný lög voru sett um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hefur ákvæðum laga um heilbrigðisþjónustu verið breytt að því er varðar skipan stjórna sjúkrastofnana á þann veg að heilbrrh. skipar stjórn sjúkrahúsa sveitarfélaga samkvæmt tilnefningu sveitarstjórna og starfsmanna, auk þess sem ráðherra skipar formann stjórnar án tilnefningar.
    Í því frv. sem hér er til afgreiðslu er breyting gerð á þessari skipan að því er varðar Reykjavíkurborg. Í 23. gr. frv. er lagt til að sérákvæði gildi um skiptingu stjórna sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar. Það ákvæði er á þann veg, með leyfi hæstv. forseta: ,,Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar skal skipuð fimm mönnum. Borgarstjórn Reykjavíkurborgar kýs þrjá fulltrúa í stjórnina og starfsmannaráð tvo.``
    Eftir að heilbrrn. gerði tillögu um þessa breytingu með ákvæði í því frv. sem hér liggur fyrir hefur bæjarráð Hafnarfjarðar sent þingmönnum Reykn. bréf þar sem ítrekuð er fyrri samþykkt ráðsins frá 14. des. 1989 varðandi stjórnun sjúkrahúsa í Hafnarfirði og beinir þeirri ósk til þingmanna kjördæmisins að þeir beiti sér fyrir þeirri breytingu á því frv. sem hér er til afgreiðslu að sami háttur verði hafður á um skipan stjórna sjúkrahúsa í Hafnarfirði og nú er gert ráð fyrir að taki gildi um stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar.
    Því var af hálfu ráðuneytisins haldið fram við afgreiðslu málsins í heilbr.- og trn. að ákvæði þetta varðandi Reykjavíkurborg komi til af því að nokkur hluti sjúkrastofnana í Reykjavík, svo sem Grensásdeild, hafi verið byggð án framlaga úr ríkissjóði. Ég veit ekki betur en að fram að þessu a.m.k. hafi borgaryfirvöld í Reykjavík talið sig eiga þá fjárhæð inni hjá ríkissjóði sem svarar til lögboðins hluta ríkissjóðs í byggingu sjúkrahúsa og hafi ekki viðurkennt neitt annað en að ríkissjóði beri að greiða þá fjárhæð með sama hætti vegna þessarar stofnunar og annarra sjúkrahúsa í landinu, samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma og skuldfært ríkissjóði samkvæmt því.
    Þegar talað er um Borgarspítalann í Reykjavík er jafnan átt við sjúkrahúsið í Fossvogi. Byggingarkostnaður þess mikla mannvirkis og búnaður hefur verið greiddur með þátttöku ríkissjóðs á nákvæmlega sama hátt og gilt hefur um önnur sjúkrahús í landinu. Með tilliti til þessa og þess að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa óskað eftir því að sömu ákvæði gildi um skipan stjórna sjúkrastofnana í Hafnarfirði og gert er ráð fyrir að taki gildi gagnvart Reykjavíkurborg í því frv. sem hér liggur fyrir höfum við þingmenn Reykn. í hv. deild flutt svohljóðandi brtt. við frv., með leyfi hæstv. forseta:
,,Við 23. gr.
    a. Á eftir orðinu ,,Reykjavíkurborgar`` í fyrri málsl. efnismgr. a-liðar (30.2) komi: og Hafnarfjarðarbæjar.
    b. Í stað orðanna ,,Borgarstjórn Reykjavíkurborgar`` í síðari málsl. efnismgr. a-liðar (30.2) komi:

Sveitarstjórn.``
    Ég vænti þess að þingmenn þessarar hv. deildar geti fallist á þessa beiðni bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um að sama tilhögun gildi um skipan stjórna sjúkrastofnana í Hafnarfirði og Reykjavíkurborg enda eru engin gild rök fyrir öðru.