Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að gerðar hafa verið ítarlegar tilraunir til að ná samkomulagi um að afgreiða frv. um verkefni umhverfisráðuneytis. Ég tel nú orðið samkomulag um að afgreiða það mál, en hins vegar liggja hér fyrir ýmsar brtt. sem verða að ganga til atkvæða. Ég hef því leyft mér að flytja brtt. mínar og tek ég þar inn atriði sem eru liður í þessari viðleitni og ætla að lýsa þeim í örfáum orðum.
Gert er ráð fyrir því í 1. lið brtt. að sá hluti Hollustuverndar sem fjallar um mengunarmál flytjist til umhverfisráðuneytis en hins vegar verði heilbrigðisþátturinn áfram hjá heilbrrn. Um það má vissulega deila, eins og flest, hvort æskilegt er að skipta stofnun þannig. Staðreyndin er þó sú að þessir þættir eru vel aðskildir í stofnuninni í sjálfstæðum deildum. Vitanlega eru fjölmörg dæmi þess að verkefni einnar stofnunar heyri undir fleiri en einn ráðherra. Ég nefni t.d. stofnanir sem starfa að einhverju leyti á Keflavíkurflugvelli. Sá þáttur sem því viðkemur heyrir þá undir utanrrh. Ég nefni stofnun eins og áfengisvarnanefnd sem heyrir undir tvo ráðherra og ég
gæti reyndar nefnt margar fleiri. Um þetta þarf hins vegar vitanlega að setja ákveðnar reglur og kem ég að því síðar.
Í annarri tillögu er gert ráð fyrir því að þær greinar sem fjalla um eiturefnanefnd og geislavarnir falli brott, þ.e. eiturefnanefnd og Geislavarnir flytjist ekki undir umhverfisráðherra, a.m.k. á þessu stigi málsins.
Þá er gert ráð fyrir því að gildistökutími þeirra greina sem áður voru 16. og 17. gr. verði 1. jan. 1991. Þar er um að ræða skipulagsmálin og byggingarmálin. Ýmislegt getur út af fyrir sig mælt með þessu þó að ég hafi talið að þetta ætti að taka gildi strax. Það er rétt að það hefur komið ábending frá samtökum sveitarfélaga þar sem þau telja að þetta þurfi að skoðast nánar og þarna skapast þá svigrúm til þess. Ég tek fram að þetta er af minni hálfu samkomulagsatriði ef þetta getur að því stuðlað.
Þá er gert ráð fyrir því að forsrh. setji með reglugerð ákvæði um yfirstjórn Hollustuverndar ríkisins og Siglingamálastofnunar ríkisins þar sem tveir ráðherrar fara með verkefni þeirrar stofnunar. Það er regla að forsrh. sker úr þegar um skörun á verkefnum er að ræða eða ágreiningur um verkefni einstakra ráðherra og lögfræðingar telja að að þessu leyti sé þetta ákvæði eðlilegt.
Ég flutti hér tillögu um ákvæði til bráðabirgða fyrr. Ég hef kallað þá tillögu aftur en flyt hér þann hluta af ákvæði til bráðabirgða sem enn þá á við miðað við þá brtt. sem ég hef nú rakið.
Í fyrsta lagi að umhverfisráðherra skuli á næsta haustþingi leggja fram frv. til laga um umhverfisvernd og umhverfisverndarstofnun. Sú nefnd, eins og ég hef þegar lýst, hefur verið skipuð og í henni eiga sæti fulltrúar þeirra aðila sem hér á þingi hafa fjallað um þessi mál eða a.m.k. aðila sem þeir eiga góðan
aðgang að. Þetta er ákaflega mikilvæg stofnun sem kemur til með að skýra nánar hvernig með mengunarmál og fleira verður farið.
Í 2. lið ákvæðis til bráðabirgða er tekið fram, þó að það sé kannski óþarft, ég tek undir að því leyti með 2. þm. Reykn., að Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins skuli starfa óbreytt þar til lög um þær hafa verið endurskoðuð. En þetta er til að taka af allan vafa þrátt fyrir ákvæði 1. gr. frv.
Þá mun ég leggja fyrir Alþingi frv. til laga sem fela í sér niðurstöðu endurskoðunar á þeim lögum sem eru rakin í brtt. í fjórum liðum og varða þær stofnanir sem að einhverju leyti er skipt upp eða verkefni flutt til vegna umhverfisráðuneytisins. Þar er um að ræða lög um Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins, lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, um Siglingamálastofnun ríkisins og um losun hættulegra efna í sjó.
Ég skal ekki hafa þetta lengra, enda mikið búinn að tala um þetta mál. En ég er persónulega þeirrar skoðunar að í þessari yfirferð hafi frv. að ýmsu leyti orðið jafnvel betra. Ég tel skynsamlegt að aðgreina mengunarþáttinn, það sem varðar ytra umhverfi og hitt sem varðar manninn. Og það er gert í tillögunni um Hollustuverndina. Ég vek athygli á því t.d. að Danir færðu þann þáttinn sem varðar manninn aftur frá umhverfisráðuneyti sínu til heilbrrn.
Það er eindregin von mín að um þetta geti nú tekist samstaða og umhverfisráðuneytið þannig farið af stað með nokkurri reisn. Jafnframt er eindregin von mín að í sumar takist samstaða með fulltrúum þingflokka um að vinna áfram að þessu máli og leggja fyrir Alþingi frv. sem skýrir starfsemina enn betur á haustmánuðum og slíkt frv. megi þá afgreiða fyrir næstu áramót.