Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það er rétt skilið hjá hv. 5. þm. Austurl. að það var forsenda þessa frv. og þess starfs sem þar fór fram að gengið yrði frá þessum skuldbindingum. Og með samþykkt frv. er það mál komið á hreint og verður að sjálfsögðu fært út úr bókum Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Þá er, held ég, alveg ljóst hvar þarf að færa viðkomandi fjárhæðir hinum megin. Ég vænti þess að þau svör séu fullnægjandi.