Atkvæðagreiðslur
Föstudaginn 04. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Forseti vill láta þess getið að hann tók skýrt fram að það yrði að láta skeika að sköpuðu um framhald fundahalda í deildinni og hann getur vel tekið undir það með hv. 1. þm. Vestf. að auðvitað verður að ráðast af fundahöldum í Sþ. í kvöld hvort unnt verður að halda fund hér í deildinni að þeim fundi loknum. Forseti vill líka lýsa því yfir að hann telur að mjög mikið geti unnist á deildarfundum hér á morgun sem hefjast kl. 10, því sé alls ekki loku fyrir það skotið, ef verk verða unnin jafnhratt, skjótt og vel og gert hefur verið hér í dag, að þessari deild takist að sinna þeim verkefnum sem hún þarf að gera áður en laugardagurinn er liðinn. Við höfum því hálfan sólarhring upp á að hlaupa á morgun. Forseti hefur nú ekki verulegar áhyggjur af þessu máli.
    Hann vill hins vegar greina hv. deildarmönnum frá því að hann hefur áhuga á því að reyna að afgreiða þau mál sem samkomulag er orðið um að hér verði afgreidd, hvort sem í hlut eiga þmfrv. eða stjfrv. Hann vill standa við það samkomulag sem gert hefur verið. Hér eru nokkur þmfrv. sem þarf að afgreiða og forseti hefur fullan hug á því að gera það.