Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill taka það fram að það eru 39 hv. þm. í þessu húsi og forseti hafði þegar hringt þannig að ég hygg að hér sé nægur fjöldi þingmanna sem heyrir þessa atkvæðagreiðslu. Og þar sem ekki þarf að greiða atkvæði er ekkert við þetta að athuga. --- Hv. 4. þm. Vestf. telur ástæðu til að tala um atkvæðagreiðslu.