Þorv. Garðar Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Já, ég tel ástæðu til að tala um atkvæðagreiðslu og þegar beðið er um orðið á hæstv. forseti að gefa orðið en ekki með þessum hætti sem forseti gerði. Ég held að --- mér er nú orða vant. Ef við ætlum að taka upp þann sið að taka ákvarðanir á þingfundi án þess að tilskilinn meiri hluti þingmanna sé á fundi, þá erum við komin í mikinn vanda. Það er næsta furðulegt að hæstv. forseti skuli segja að það sé hægt að taka slíka ákvörðun ef nægilega margir eru í Alþingishúsinu. Það mætti þá alveg eins segja: Ef nægilega margir eru á þinglóðinni eða hér í grennd. Það dugar ekki annað en að nægilega margir séu á fundinum.