Frsm. meiri hl. fjvn. (Sighvatur Björgvinsson):
Frú forseti. Fjvn. hefur haft tillögu þessa til meðferðar en hún var rædd í Sþ. þann 2. apríl sl. Var tillögunni að umræðu lokinni vísað til fjvn. Nefndin hefur fjallað um málið á fundi sínum með hefðbundnum hætti og fengið til liðs við sig vegamálastjóra og starfsmenn hans. Þá hefur einnig, eins og ætíð áður, verið haft samráð við þingmannahópa kjördæmanna um skiptingu framkvæmdafjár milli einstakra viðfangsefna í kjördæmum þeirra og hefur meiri hl. fjvn. gert þeirra tillögur að sínum.
Regluleg endurskoðun vegáætlunar fór fram á síðasta þingi. Sú endurskoðun sem nú hefur farið fram á 112. löggjafarþingi nær þess vegna aðeins til tekjuspár og framkvæmdaáforma fyrir árið 1990, en regluleg endurskoðun vegáætlunar á samkvæmt vegalögum að fara fram á næsta Alþingi, þ.e. 1990--1991. Í kjölfar nýgerðra kjarasamninga og aðgerða stjórnvalda í tengslum við þá hafa verðlagsforsendur vegáætlunar tekið breytingum, bæði á tekna- og gjaldahlið og var því nauðsynlegt að óska eftir endurskoðun á áætluninni og umreikningi á henni.
Þá lá ekki heldur fyrir hvernig fara skyldi með kostnaðarauka vegna virðisaukaskatts af snjómokstri hjá Vegagerð ríkisins. Í fjárlagafrv. fyrir árið 1990 er heimild handa fjmrh. til að lækka rekstrargjöld um 2% vegna breyttra verðlagsforsendna í kjölfar kjarasamninga í febrúarmánuði sl. Lækkun á útgjöldum til vegamála af þessum sökum nemur um 90 millj. kr. og er búið að
taka tillit til þeirrar lækkunar í brtt. þeirri sem meiri hl. fjvn. flytur á þskj. 1176.
Að lokum taldi nefndin nauðsynlegt að fá upplýsingar um stöðu óinnheimtra markaðra tekjustofna til vegamála í árslok 1989. Einnig óskaði nefndin eftir að fá upplýsingar um óafgreidd framlög til girðinga og ristarhliða. Nefndinni bárust upplýsingar frá stjórnvöldum er varða þau atriði sem nefnd voru hér að framan.
Í tillögunni er gert ráð fyrir því að markaðir tekjustofnar til vegamála á árinu 1990 nemi alls 4 milljörðum 496 millj. kr. Ný tekjuspá vegna breyttra verðlagsforsendna gerði hins vegar ráð fyrir að markaðir tekjustofnar næmu 4 milljörðum 396 millj. kr. sem er 100 millj. kr. lægri fjárhæð en fram kemur í þáltill. en er að sjálfsögðu komin rétt í brtt. sem við í meiri hl. flytjum á þskj. 1176. Til að mæta þeim tekjumissi er hins vegar gert ráð fyrir því að innheimta eftirstöðva markaðra tekjustofna til vegamála hækki um 100 millj. kr. á árinu 1990. Fjmrn. hefur að undanförnu gert sérstakt innheimtuátak sem áætlað er að skili auknum tekjum af mörkuðum tekjustofnum til vegamála í ríkissjóð að fjárhæð 100 millj. kr. og fara þær að sjálfsögðu óskertar til framkvæmda í vegamálum. Þegar búið er að taka tillit til þessa sérstaka innheimtuátaks hefur því verið tryggt að ráðstöfunarfé verði óbreytt til
vegamála á árinu 1990 frá því sem þáltill. gerði ráð fyrir.
Ég vil aðeins í þessu sambandi taka það fram að fjvn. hefur grennslast fyrir um það sérstaklega, bæði hjá samgrn. og fjmrn., hvort ætla megi að þessi áætlun muni nást, þ.e. eftirstöðvar markaðra tekna frá fyrri árum vegna sérstakra hertra innheimtuaðgerða á vegum fjmrn. að fjárhæð 100 millj. kr. Þær upplýsingar sem fjvn. hefur fengið eru á þá leið að raunar sé þegar búið að ná þessum árangri sem hér um ræðir. Það er því alveg ljóst að innheimta þessi verður a.m.k. 100 millj. kr., eins og gert er ráð fyrir í brtt. á þskj. 1176, en þó sennilega nokkru meiri. Það liggur einnig fyrir sú skoðun bæði samgrn. og fjmrn. að sá tekjuauki sem kann að nást vegna bættrar innheimtu og er eftirstöðvar markaðra tekna frá fyrri árum, gangi inn í vegáætlun til frekari framkvæmda. Það virðist því alveg ljóst á þessari stundu að það nást inn vegna þessa sérstaka innheimtuátaks a.m.k. 100 millj. kr., eins og hér er gert ráð fyrir, en þó sennilega nokkru meira. Þarna er því fremur varlega áætlað en hitt.
Þá er fyrirhugað af hálfu fjmrn. að gefa út reglugerð um niðurfellingu virðisaukaskatts af snjómokstri. Með þessari ákvörðun má áætla að tilkostnaður Vegagerðar ríkisins við snjómokstur geti lækkað um 80 millj. kr. á árinu 1990 sem er svo til sama fjárhæð og fyrirhuguð lækkun útgjalda um 2% vegna breyttra verðlagsforsendna gerir ráð fyrir. Sú lækkun sem gert er ráð fyrir á framkvæmdafé í vegamálum í fjáraukalögum fyrir árið 1990 er því alfarið unnin upp með þeirri ákvörðun fjmrn. að breyta reglum um virðisaukaskatt, með því að fella niður virðisaukaskatt á snjómokstri. Stendur það þá nokkuð á endum að sú aðgerð mun spara kostnað hjá Vegagerðinni er nemur 80 millj. kr. sem er sama fjárhæð og lækka átti útgjöld til vegamála um samkvæmt frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1990.
Á fskj. sem birtist með nál. meiri hl. er svo yfirlit frá Vegagerð ríkisins um óafgreiddar kröfur vegna girðinga og ristarhliða. Þar kemur fram að heildarfjárþörf til þessara viðfangsefna um síðustu áramót nemur um 264 millj. kr. og er það allt frá árinu 1978.
Til afgreiðslu á Alþingi er till. til þál. um að flýta framkvæmdum við jarðgöng á Vestfjörðum. Í þáltill. er gert ráð fyrir að framkvæmdir við jarðgangagerð á Vestfjörðum geti hafist á árinu 1991. Til þess að svo megi verða er nauðsynlegt að hraða öllum undirbúningi verksins á þessu ári og til þess þarf að verja allt að 47 milljörðum kr. til viðbótar heimaframlagi sem tekið er að láni. Heimildar verður leitað fyrir lántökunni við afgreiðslu fjáraukalaga fyrir árið 1990 á komandi hausti. Í brtt. meiri hl. nefndarinnar á þskj. 1176 er gert ráð fyrir fjármögnun þess kostnaðar sem til fellur á árinu 1990 við undirbúning jarðgangagerðar á Vestfjörðum. Er búið að taka þá ávörðun ef sú tillaga verður samþykkt að sú framkvæmd verði unnin á vettvangi vegáætlunar eins og allar aðrar vegaframkvæmdir sem kostaðar eru
af ríkisfé á Íslandi og ekki verði tekinn upp sá háttur að vera með vegagerðarverkefni kostuð af ríkissjóði utan vegáætlunar.
Við endanlega ákvörðun um framlög til einstakra verkefna hafa þingmenn kjördæma síðan unnið í samráði við Vegagerð ríkisins og hefur nefndin fallist á allar tillögur þingmannahópa um tilfærslur milli verkefna, enda hafa þær ekki breytt heildarframlögum til vegamála á árinu 1990. Ég tel ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að rekja allar brtt. þingmannahópanna, þingmannahóparnir sjálfir vita gerst hverjar breytingar þeir hafa lagt til hver í sínu kjördæmi, og læt mér nægja að segja að meiri hl. fjvn. hefur fallist á þær tillögur og heldur þeim til skila í brtt. sínum á þskj. 1176.
Það eru aðeins tvö atriði, virðulegi forseti, sem ég vildi ljúka máli mínu með. Í fyrsta lagi að láta þess getið að miðað við þann snjómoksturskostnað sem Vegagerð ríkisins hefur þurft að leggja í nú þegar á þessum vetri og á sl. hausti eru allar horfur á að það muni vanta á þessu ári miðað við svipuð umsvif í snjómokstri og á síðasta hausti um 60--80 millj. kr. Það er vandamál sem einnig þarf að taka á þegar ljósar liggur fyrir en nú hver kostnaður er af snjómokstri á þessu vori. Menn verða þá að taka á því vandamáli í haust þegar Alþingi kemur saman.
Einnig liggur það fyrir að framkvæmdir við jarðgöng í Ólafsfjarðarmúla hafa gengið miklu greiðar en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir og ekkert nema gott um það að segja. Tæknilegur og verkfræðilegur undirbúningur hefur verið með þvílíkum ágætum að þar hafa fá eða engin óvænt atvik komið upp sem tafið hafa getað það verk, þvert á móti hefur verkið gengið mjög vel fram og raunar unnist mun hraðar og betur en gert var ráð fyrir. Því verður hægt að opna þessi jarðgöng til umferðar mörgum mánuðum fyrr en upphaflega var gert ráð fyrir. Þetta hefur að sjálfsögðu orðið til þess að greiðslur vegna verksins falla nokkuð hraðar til en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Því er ljóst að allverulegar fjárhæðir vegna framkvæmdanna sem gert var ráð fyrir að féllu til greiðslu á næsta ári munu falla til greiðslu á þessu ári. Það er einnig mjög fjárfrekt viðfangsefni sem verður að sinna sérstaklega þegar nánari upplýsingar um það liggja fyrir síðar á þessu ári og þá væntanlega takast upp við afgreiðslu fjáraukalaga á komandi hausti þegar nánar er vitað um hvað þar muni falla til til viðbótar sem allar líkur benda til að verða muni. Ég ítreka það að hér er aðeins um að ræða tilfærslur á greiðslum frá árinu 1991 þegar þessar greiðslur voru ráðgerðar til ársins 1990 þegar allar líkur eru á að þær muni greiðslufalla. Ástæðan er sú sem ég hef skýrt áður, virðulegi forseti, að verkið hefur gengið miklu betur og greiðar en menn áformuðu og því falla að sjálfsögðu greiðslur til verktakans fyrr í gjalddaga en upphaflega var ákveðið.
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að rekja þetta mál frekar. Ég varð var við það hér áðan að í nál. meiri hl. fjvn. hafa fallið niður nokkrar skýringar þar sem reynt var að rekja gang tekna og útgjalda
eins og hann var við vegáætlun þá sem lögð var fram á síðasta vetri og afgreidd síðan með þeim breytingum sem endurskoðun á forsendum þeirrar vegáætlunar sem afgreidd var í fyrra leiddi af sér. M.a. breytingum er varða tekjuhlið vegáætlunarinnar vegna annarra verðlags-, launa- og gengisforsendna en notaðar voru við áformin í fyrra. Í þriðja lagi var síðan sýnt hvernig þessar endurskoðuðu tillögur á óbreyttum grunni frá því í fyrra breytast nú við þessa afgreiðslu, bæði vegna þess niðurskurðar sem áformaður hefur verið varðandi fjárútvegun til vegaframkvæmda og vegna þeirra viðbótartekna sem nú er gert ráð fyrir, þ.e. í fyrsta lagi eftirstöðvar markaðra tekna frá fyrri árum að fjárhæð 100 millj. og í öðru lagi vegna sérstakrar fjáröflunar vegna byggingar jarðganga á Vestfjörðum að upphæð 47 millj. kr. Hér er um viðbætur að ræða við markaðar tekjur vegáætlunar þannig að meira fé verður til ráðstöfunar í vegaframkvæmdum á árinu 1990 en nemur eingöngu framlagi af mörkuðum tekjum og að staðið verður að fullu við þá yfirlýsingu hæstv. samgrh., verði þessar tillögur samþykktar, að kostnaðarleg áhrif af flýtingu jarðganga á Vestfjörðum leiði ekki til samdráttar á fjárframlögum í neinum öðrum framkvæmdum eða neinu öðru kjördæmi hvað varðar framkvæmdir í vegamálum.
Ég legg svo til, virðulegi forseti, að samþykktar verði brtt. á þskj. 1176 og vegáætlun þar með afgreidd eins og þar segir. Undir nál. meiri hl. fjvn.
rita auk mín Margrét Frímannsdóttir, Ólafur Þ. Þórðarson með fyrirvara, Alexander Stefánsson og Ásgeir Hannes Eiríksson.