Vegáætlun 1989-1992
Föstudaginn 04. maí 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Nú er það svo að hv. meiri hl. fjvn. hefur á þskj. 1176 lagt fram brtt. um að tillgr. orðist eins og þar segir. Hins vegar höfðu tveir hv. þm., 2. þm. Vestf. og 16. þm. Reykv., lagt fram brtt. á þskj. 1177 sem er raunar tillaga um breytingu á hinni upphaflegu till. til þál. Nú hefur forseti kannað það að tillagan geti verið brtt. við brtt. meiri hl. fjvn. eftir að hafa ráðgast við embættismenn og rætt við fyrri hv. flm. Á það er lögð áhersla að þessi tillaga komi til atkvæða, og hefur forseti úrskurðað að svo skuli gert.