Vegáætlun 1989-1992
Föstudaginn 04. maí 1990


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Hæstv. forseti. Ég vil taka undir það sem í raun kom fram í máli fyrri flm. tillögunnar þegar hann mælti fyrir henni hér áðan að þörf er á því að fara ofan í það viðfangsefni sem hann ræddi, þ.e. samskipti búpenings og umferðar og með hvaða hætti skuli tryggja betur en nú er gert umferðaröryggi sem og uppfylla skuldbindingar Vegagerðarinnar samkvæmt vegalögum og girðingalögum um girðingar meðfram vegum. M.a. hefur í því sambandi starfshópur nýlega skilað skýrslu með tillögum um úrbætur í þeim efnum. Ég tel eðlilegt að þetta verði tekið til skoðunar samhliða endurskoðun á langtímaáætlun um vegagerð og tel það heppilegri vinnubrögð heldur en að samþykkja þessa brtt. að svo stöddu og segi því nei.