Vegáætlun 1989-1992
Föstudaginn 04. maí 1990


     Alexander Stefánsson:
    Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að vísa í yfirlýsingu sem kom hér fram hjá hæstv. samgrh. Ég ætla að vísa í yfirlýsingu hans hér um endurskoðun á langtímaáætluninni sem ætti að vera hafin fyrir löngu. Við höfum óskað eftir að við hana yrði staðið og þá verði þetta vandamál sem þessi tillaga hv. þm. fjallar um leyst. Í trausti þess segi ég nei.