Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson):
Hæstv. forseti. Þetta er 23. mál þingsins, sem er till. til þál. um þátttöku varnarliðsins í gerð þjóðvega hér á landi. Flm. er Ásgeir Hannes Eiríksson.
Nál. utanrmn. er svohljóðandi:
,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði felld.``
Undir þetta skrifa allir meðlimir utanrmn.