Frsm. meiri hl. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Þetta er 168. mál þingsins sem er till. til þál. um forkönnun Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins á alþjóðlegum varaflugvelli á Íslandi. Flm. eru Geir H. Haarde og fleiri ágætir þingmenn.
    Nál. meiri hl. utanrmn. er þannig:
    ,,Nefndin hefur fjallað um málið á nokkrum fundum og leggur til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.``
    Undir þetta nál. skrifa Jóhann Einvarðsson, Hjörleifur Guttormsson, Birgir Ísl. Gunnarsson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Guðmundur G. Þórarinsson og Karl Steinar Guðnason.