Friðrik Sophusson:
Hæstv. forseti. Ég verð að harma það að hafa ekki fengið skýrari greinargerð frá hæstv. ráðherrum. Reyndar kom það fram í svari hæstv. iðnrh. að allt það sem ég sagði í minni ræðu er viðurkennt. Hann hefur sagt að þetta þurfi að athugast vandlega og það þurfi að athuga það nákvæmlega hvernig ljúka skuli þessu gjaldi. Og síðan, og það er meginröksemdin, eigi að taka þetta fyrir í fjáraukalagafrv. síðar á árinu vegna þess, að mér skildist, að hér væri aðeins verið að fjalla um fjáraukalög vegna kjarasamninganna í febrúar á þessu ári.
Nú er það afar einfalt að breyta fyrirsögn þessa fjáraukalagafrv. og kalla frv., og þar með lögin, fjáraukalög vegna kjarasamninga í febrúar 1990 og kjarasamninga á sl. ári. Einfaldlega vegna þess að þá lá fyrir yfirlýsing hæstv. ríkisstjórnar um að þetta gjald mundi falla niður við upptöku virðisaukaskattsins. Ég skal fúslega fallast á að það kunni að vera eðlilegt að leggja gjaldið á í upphafi ársins til þess að mæta þeim útgjöldum sem hlutu að koma vegna þess að fjáraukalögin á síðasta ári dugðu ekki til en það stendur eftir í þessu máli, sem er afar alvarlegt, að hv. Alþingi hefur tekið ákvörðun á gefnum forsendum í tekjuáætlun fjárlaga í stað þess, þegar það liggur að áliti hæstv. ríkisstjórnar ljóst fyrir að breyta þurfi, er ekki leitað heimilda Alþingis þegar tækifæri gefst til heldur á að hlíta niðurstöðu hæstv. ríkisstjórnar sem þó hefur ekki fjárveitingavaldið. Ég tel að þetta séu alvarleg vinnubrögð sem geti skapað mjög slæm fordæmi.
Ég vek einnig athygli á því, hæstv. forseti, að verði þessar tillögur felldar sé ég ekki hvernig hæstv. ríkisstjórn getur ráðstafað 170 millj. til þessa verkefnis þar sem hv. Alþingi hefur þá fellt slíka tillögu. Ég tel gersamlega út í bláinn ef það er ætlun hæstv. ríkisstjórnar að beita sér fyrir því að þessi tillaga falli sem ég trúi reyndar ekki.
Ég tel einnig að þegar fjárlagafrv. var samþykkt hafi legið til grundvallar sú forsenda að lögin um jöfnunargjald yrðu felld úr gildi og gildir þá einu hvort hugsanlegt sé að ná einhverjum nýjum samningum við okkar viðskiptalönd sem við hefðum samninga við, þ.e. fyrst og fremst EFTA-löndin og einnig Evrópubandalagslöndin. Ég vek athygli á þessu vegna þess að af þeim óskýru svörum sem hæstv. ráðherrar gáfu má ætla að á grundvelli tillöguflutnings hæstv. iðnrh. hinn 16. mars í ríkisstjórninni sé til athugunar hjá hæstv. ríkisstjórn að greiða uppsafnaðan söluskatt frá fyrra ári og láta jöfnunargjaldið innheimtast í lengri tíma en fjárlög gera ráð fyrir. Ég vek athygli á þessu og tel að það væri hæstv. ríkisstjórn til sóma að takast á við þetta mál, sem hæstv. ríkisstjórn hefur verið kunnugt um, áður en Alþingi er slitið. Ég verð að segja að ég harma það mjög ef hæstv. ráðherrar ætla að beita sér fyrir því að þessar tillögur falli en taka síðan í kjölfarið, eftir
sínar eigin athuganir, ákvarðanir sem eru ekki í þeirra verkahring heldur í verkahring hv. Alþingis.
Ég leyfi mér að lokum, hæstv. forseti, að skora á hæstv. ráðherra að skoða nú vel sinn hug og kanna hvort ekki sé eðlilegt, þegar verið er að ræða um fjáraukalög vegna kjarasamninga á yfirstandandi ári, að skoða þetta mál með tilliti til yfirlýsingar hæstv. ríkisstjórnar í tengslum við kjarasamninga á sl. ári.
Auðvitað mætti hafa mörg fleiri orð um þetta. Ég skal viðurkenna að þetta er ekkert stórmál, það eru ekki neinir milljarðar sem verið er að tala um. Þetta er miklu minna mál en sá halli sem hefur myndast á ríkissjóði af ýmsum ástæðum, en þetta er þó grundvallaratriði hvernig fara á með þegar allar upplýsingar liggja fyrir í málinu.