Fjáraukalög 1990
Föstudaginn 04. maí 1990


     Friðrik Sophusson:
    Hæstv. forseti. Ég verð að hryggja hæstv. ráðherra með því að mér finnst full ástæða til að láta á þetta mál reyna. Ef hæstv. iðnrh. hefði komið hér í ræðustól og sagt að hann skyldi sjá til þess að þetta gjald yrði ekki innheimt nema kannski í 1--2 mánuði umfram þá 6 sem um getur í fjárlögum, þá hefði ég sætt mig við þá niðurstöðu. En ég tel að svar hæstv. ráðherra, það sem hann sagði hér í þessum ræðustól, gefi fyllilega til kynna að hæstv. ríkisstjórn sé að hugsa um að taka inn miklu meiri tekjur en fjárlög gefa tilefni til. Og ég vek athygli hæstv. forseta og hæstv. ráðherra á því að ef gjaldið verður innheimt allt árið þýðir það að um það bil helmingi meiri tekjur koma í ríkissjóð en hv. Alþingi samþykkti þegar fjárlög voru afgreidd seint á síðasta ári. Þess vegna endurtek ég að mér finnst standa upp á hæstv. ríkisstjórn að gera ráðstafanir fyrir þinglok til að afla sér heimilda. Það liggja nokkuð skýrar upplýsingar fyrir í þessu máli, nægilega skýrar til þess að hægt er að taka ákvörðun á yfirstandandi þingi með þeim hætti sem Alþingi er sómi að.