Læknalög
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Stefán Guðmundsson):
    Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á læknalögum nr. 53/1988 frá heilbr.- og trn. Þar segir:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess.``
    Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Salome Þorkelsdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Karl Steinar Guðnason, Guðmundur H. Garðarsson, Valgerður Sverrisdóttir og Danfríður Skarphéðinsdóttir.