Yfirstjórn umhverfismála
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. meiri hl. allshn. (Jón Helgason):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, lögum nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála. Nál. er frá meiri hl. allshn.
    Nefndin hefur fjallað um frv. en efni þess var rætt ítarlega í nefndinni fyrr á þessu þingi er hún hafði til umfjöllunar 129. mál, um Stjórnarráð Íslands. Fékk nefndin þá á sinn fund fulltrúa margra þeirra stofnana sem málið varðar og gerðu þeir grein fyrir afstöðu sinni.
    Við meðferð málsins í Nd. var tekið tillit til ýmissa ábendinga sem komu fram við þessi nefndarstörf og í þeim búningi hefur Ed. fengið frv. Í því formi sem frv. er nú er skapaður grundvöllur til að fjalla nánar um ýmsa þætti þessara mála með endurskoðun laga sem því tengjast. Við þá endurskoðun er nauðsynlegt að reyna að ná sem víðtækastri samstöðu um þetta mikilvæga mál og sameina krafta allra þeirra sem að því vinna. Þrátt fyrir þær deilur sem orðið hafa á Alþingi nú í vetur eru allir sammála um mikilvægi þessa málefnis og nauðsyn þess að vinna að þeim eins vel og nokkur kostur er og við höfum bolmagn til. Á þessu sumri verður unnið að því að endurskoða ýmis lög sem þessu tengjast og breyta þeim í þá átt sem heppilegast verður þá talið.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt eins og Nd. afgreiddi málið. Minni hl. mun skila séráliti. Meiri hl. nefndarinnar skipa Jón Helgason, Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson og Skúli Alexandersson. Auk þess sat Sveinn G. Hálfdánarson lokafund nefndarinnar um málið og lýsti sig samþykkan afstöðu meiri hl.