Yfirstjórn umhverfismála
Laugardaginn 05. maí 1990


     Umhverfisráðherra (Júlíus Sólnes):
    Hæstv. forseti. Við nálgumst nú endalok í þessu mikilvæga máli sem snertir yfirstjórn umhverfismála. Ég vil fyrir mitt leyti ítreka ánægju mína yfir því að þessi mikilvægi málaflokkur sem á eftir að taka hug okkar mjög upp á næstu árum og áratugum skuli nú loksins vera að komast í endanlegt horf þannig að það megi fara að taka á þessum málum af einhverri festu.
    Ég verð að segja eins og er að málflutningur hv. þm. Sjálfstfl. hefur valdið mér miklum vonbrigðum. Mér finnst í raun og veru sorglegt að sjá á hinu háa Alþingi nál. eins og kemur frá 1. minni hl. allshn. sem þeir hv. þm. Salome Þorkelsdóttir og Eyjólfur Konráð Jónsson skrifa undir. Það sem kemur fram í því er Alþingi til vansæmdar en fyrst og fremst til vansæmdar fyrir þá tvo þingmenn sem skrifa svona bull í nál. Ef þessar kenningar, sem reyndar hafa einnig komið fram í máli hv. þm. Karvels Pálmasonar, væru réttar þá er aldrei hægt að mynda stjórn á Íslandi nema þar fari fram hrossakaup. Ég spyr: Þegar stjórnin var mynduð í júlí 1987 keypti þá Sjálfstfl. Framsfl. og Alþfl. í einhverjum hrossakaupum? Líklega hefur þá Framsfl. líka keypt Sjálfstfl. í sams konar hrossakaupum og væntanlega þá Alþfl. bæði Sjálfstfl. og Framsfl. Svona málflutningur á hinu háa Alþingi er náttúrlega öllum þeim sem þannig standa að máli til vansæmdar og er síst til þess að auka á virðingu Alþingis meðal þjóðarinnar.