Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Ég vil að sumu leyti taka undir ummæli hv. þm. Salome Þorkelsdóttur, 6. þm. Reykn. Ekki þó kannski sérstaklega vegna þessa máls því ég lít nú svo á að að mörgu leyti hafi þetta mál fengið þá umfjöllun hér á hv. Alþingi sem við þingmenn getum fellt okkur við, en ég vil sérstaklega benda á að það virðist vera orðið ansi lítið eftir af þingræðinu hjá okkur vegna þess að foringjar stjórnmálaflokkanna gera nú þann hlut sí og æ að semja fyrir þingið allt um afgreiðslu mála, ganga frá því hvernig þetta eða hitt skuli gert án þess að þingmenn og þingnefndir hafi möguleika til að fjalla um hlutina. Það er fámenn foringjaklíka, leyfi ég mér að segja, sem afgreiðir mál hér á Alþingi. Þessum vinnubrögðum vil ég mótmæla og undir þann þátt sem fram kom hjá hv. þm. um þennan hlut mála á hv. Alþingi vil ég taka.