Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. meiri hl. sjútvn. (Stefán Guðmundsson):
    Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. á þskj. 1294 um frv. til laga um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins frá meiri hl. sjútvn. Þar segir svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað ítarlega um frv. á þeim skamma tíma sem henni hefur gefist til þess. Á fund nefndarinnar komu Árni Kolbeinsson og Ólafur Klemensson frá Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins, Kristján Ragnarsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Sigurður Haraldsson frá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda, Bjarni Lúðvíksson frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Árni Benediktsson frá Félagi Sambandsfiskframleiðenda og Lárus Jónsson frá Félagi rækju- og hörpudiskframleiðenda.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að gerð verði breyting á 3. gr. frv. þannig að ákvörðun um deildaskiptingu sjóðsins verði með sama hætti og upphaflega var ráð fyrir gert í frv.
    Leggur meiri hl. til að frv. verði samþykkt með þessari breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Guðmundur Ágústsson sat fundi nefndarinnar og er samþykkur þessari afgreiðslu málsins.``
    Undir þetta nál. rita Stefán Guðmundsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Karvel Pálmason, Skúli Alexandersson og Jóhann Einvarðsson.