Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. minni hl. sjútvn. (Guðmundur H. Garðarsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir hönd minni hl. sjútvn. Ed. fyrir nál. um frv. til laga um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins. Nál. hljóðar sem hér segir:
    ,,Það frv., sem hér er til umræðu, hefur verið til meðferðar í deildum þingsins undanfarnar vikur. Leitað hefur verið álits aðila úr sjávarútvegi og fiskiðnaði um efni frv. Meginþorri þeirra hefur lýst yfir andstöðu við það og lýst þeirri skoðun sinni að eðlilegt sé að atvinnugreinin njóti að fullu og hafi til ráðstöfunar þær tekjur sem myndast á hverjum tíma við sölu sjávarafurða. Er það í samræmi við þróun mála í nágrannaríkjum Íslands þar sem hinn frjálsi markaður ræður ríkjum.
    Með þessu frv. er verið að skerða samkeppnishæfni íslenskrar fiskvinnslu sérstaklega og staða hennar á hverjum tíma notuð sem hagstjórnartæki til að ná fram almennum markmiðum í stjórn efnahagsmála. Við þetta er sjávarútvegur og fiskiðnaður settur í verri stöðu en aðrar atvinnugreinar. Við það er ekki hægt að una. Í því felst óréttlæti og mismunun sem brýtur í bága við það grundvallaratriði að allir skuli hafa sama rétt og aðstöðu til atvinnurekstrar.
    Íhlutun sem þessi mun hafa skaðleg áhrif á rekstrar- og samkeppnisstöðu mikilvægustu atvinnugreinar landsmanna. Með tilliti til þess leggja undirritaðir til að frv. verði fellt.``
    Undir nál. rita Guðmundur H. Garðarsson og Halldór Blöndal.