Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég óska eftir að fá fjmrh. hér í deildina.
Herra forseti. Ég vil fyrst lýsa sérstakri undrun minni á ummælum hæstv. sjútvrh. við eldhúsumræðurnar þegar hann talaði um það að við sjálfstæðismenn hefðum ekki viljað taka þátt í efnislegri umræðu um það hvernig við vildum halda á stjórn fiskveiða. Ég vakti athygli á því hér í deildinni að það væri auðvitað hneyksli að hæstv. sjútvrh. skyldi ekki taka efnislega til máls hér við meðferð málsins í Ed. við 2. umr. Í þessari deild voru þá staddir þrír þingmenn sem höfðu tekið þátt í störfum með þeirri ráðgjafarnefnd sem hér hafði verið að vinnu í 1 1 / 2 ár. Úr því að þeim pappírum var kastað í ruslakörfuna sem við vorum þá með í raun og veru með því að taka upp auðlindaskattinn og með því að breyta eðli Úreldingarsjóðs, sem ég vil taka alveg skýrt fram að við sjálfstæðismenn höfðum ekki lagt blessun okkar yfir, var það mjög óviðeigandi af hæstv. sjútvrh. að komast að orði með þessum hætti. Hann hefði á hinn bóginn auðvitað getað sýnt þessum þremur þingmönnum sem tóku þátt í þessum störfum þá sjálfsögðu kurteisi að gefa þeim kost á að skiptast á skoðunum við hann um málið eins og það lá fyrir. Hæstv. sjútvrh. kaus hins vegar að leiða umræðurnar hjá sér og koma með þeim hætti í veg fyrir skoðanaskipti milli fulltrúa Sjálfstfl. í ráðgjafarnefndinni og hans. Ég lét það kyrrt liggja þó hann fengist ekki til að taka til máls en hitt finnst mér ósvífni af hæstv. sjútvrh. að vera að tala um það að við sjálfstæðismenn höfum ekki verið reiðubúnir til efnislegrar umræðu um málið þegar á hann hafði verið skorað að taka þátt í slíkum umræðum og hann hafði ekki virt þá beiðni svars. Það er auðvitað alveg makalaus framkoma.
Ég vil líka taka það fram að eins og þær breytingar voru í andstöðu við þá skoðun sem fulltrúar hagsmunaaðila létu í ljós er það frv. sem hér liggur fyrir andstætt vilja hagsmunaaðila. Hér fer sjútvrh. öðru sinni --- ég vil
segja öðru sinni á þessum degi, eða hvað á að segja? Hann ætlar að láta afgreiða frá Alþingi tvö mál sem bæði mæta mikilli andstöðu hjá hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. Bæði eru þess eðlis að þau eru af þeim talin veikja stöðu sjávarútvegsins til þess að aðlaga sig aukinni samkeppni og nútímaviðskiptaháttum. Það er auðvitað í samræmi við það sem ég sagði í umræðunum um stjórn fiskveiða, að hæstv. sjútvrh. hefur orðið viðskila við þá menn sem bera ábyrgð á sjávarútvegi hér á landi. Af þeim sökum markar þessi lagasetning þáttaskil í ferli hans sem sjútvrh.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta. Auðvitað er það rétt sem hv. 14. þm. Reykv. sagði hér áðan að frv., eins og það liggur hér fyrir, mun, ef að lögum verður, ekki verða til góðs fyrir sjávarútveginn.
Hins vegar er annað atriði, herra forseti, sem ég tel óhjákvæmilegt að vekja athygli á og það er bráðabirgðaákvæðið. Við sjáum að hér eigi ríkissjóður
að yfirtaka skuldbindingar vegna Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Annars vegar eru skuldbindingar frá 1981. Þá var önnur vinstri stjórn í landinu og skildi eftir sig þann slóða sem nú á að leggja á ríkissjóð. Hins vegar er talað um að þær skuldir, sem efnt var til eftir að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hin fyrri tók við völdum, séu nú um 2 milljarðar kr. Af þeim sökum, herra fjmrh., vil ég spyrja hvernig hæstv. fjmrh. hyggst fjármagna þessar skuldir á þessu ári og láta í ljós undrun yfir því að þessi fjárhæð skyldi ekki hafa verið tekin inn í fjáraukalögin. Það liggur náttúrlega alveg ljóst fyrir að þessir 2 milljarðar sem gert er ráð fyrir að ríkið yfirtaki eru í raun aukinn greiðsluhalli á ríkissjóði sem nemur 2 milljörðum á þeim tíma sem ríkisstjórnir Hermannssonar hafa starfað. Það er rétt athugasemd sem hér kemur fram að hér er um yfirtöku á þessum skuldum að ræða vegna þess að Alþingi hefur með sinni atkvæðagreiðslu gert orð hæstv. sjútvrh. að engu, að þessar skuldir eigi að greiðast úr ríkissjóði. Meiri hluti Alþingis hefur hafnað þeirri leið þegar við sjálfstæðismenn höfum flutt um það brtt. að Alþingi standi við fyrirheit sjútvrh. Hann greiddi meira að segja sjálfur atkvæði á móti því að við fyrirheit hans yrði staðið. Má segja að að því leyti sé batnandi manni best að lifa. Nú leggur hann þó til að ríkissjóður yfirtaki skuldirnar, en þá kemur til kasta hæstv. fjmrh. Með hvaða hætti hyggst hann fjármagna þá 2 milljarða sem hér er lagt til að leggist á ríkissjóð? Það er að vísu gert ráð fyrir að þessi lög taki gildi 1. júní nk., eftir tæpan mánuð, og er nauðsynlegt að fá svör við þessu.
Greiðsluhallinn er þessu meiri nú á pappírnum. Áður var hann það í raun. Nú verður hann þessu meiri á pappírnum, þessum 2 milljörðum kr. á pappírnum í raun. Það verður ákvörðun Alþingis, ef frv. verður samþykkt, og þess vegna er fyrirspurnin sett fram, virðulegi forseti.