Skipan prestakalla
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. allshn. (Jón Helgason):
    Hæstv. forseti. Í Nd. voru gerðar nokkrar smávægilegar breytingar á frv. Í Árnessýslu var breytt skipan prestakalla. Ráðningartími aðstoðarpresta var lengdur úr þremur árum í fjögur. Og bætt var inn viðaukaákvæði við endurskoðunarákvæðið um að nú á þessu ári fari fram endurskoðun á skipan prestakalla milli prófastsdæma í Strandasýslu.
    Eftir viðræður við nefndarmenn allshn. gerir nefndin ekki athugasemdir við þessar breytingar.