Frsm. sjútvn. (Stefán Guðmundsson):
    Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. sjútvn. á þskj. 1308 við frv. til laga um breytingu á lögum nr. 33/1922, um rétt til fiskveiða í landhelgi Íslands.
    Nál. er stutt og hljóðar svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.``
    Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Karvel Pálmason, Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson, Guðmundur H. Garðarsson og Halldór Blöndal.